Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Kynningarfundur fyrir borgaralega fermingu

Kynningarfundur vegna borgaralegrar fermingar 2020 verður haldin sunnudaginn 10. nóvember 2019

Verður hann haldinn í stóra salnum í Háskólabíói og hefst kl 13:00.

Vonumst við til þess að sjá sem flesta þar. Reiknað er með því að fundurinn taki um 1 klukkustund þar sem farið verður yfir veturinn í stuttu máli, námskeiðið, athöfnina, kostnað, kennslustaði og aðra praktíska hluti.

Mikilvægt er að sem flestir mæti sem ætla að taka þátt í prógramminu fyrir höfuðborgarsvæðið, en við ætlumst EKKI til að landsbyggðarfólk, sem er búsett langt í burtu, mæti. Glærurnar sem notaðar verða á fundinum verða settar á vefsíðuna okkar eftir fundinn þannig að þið hafið aðgang að upplýsingunum þar.

Eftir fundinn verður svo upptakan aðgengileg á netinu, svo fólk missi ekki af neinu.

Öll ungmenni og foreldrar/aðstandendur velkomnir!

Til baka í yfirlit