Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Athygli vakin á óviðeigandi afskiptum trúhreyfinga af skólastarfi

Siðmennt hefur sent Fræðsluráði, Leikskólaráði og Jafnréttisnefnd Reykjavíkur bréf þar sem athygli er vakin á óviðeigandi afskiptum trúhreyfinga af skólastarfi í Reykjavík.

Siðmennt telur að trúaráróður eigi ekki heima í skólum sem reknir eru á kostnað almennings. Skólinn á að vera hlutlaus fræðslustofnun. Í merkilegu stefnuplaggi Reykjavíkurborgar, Fjölmenningarstefna Reykjavíkurborgar, er gerð virðingaverð tilraun til þess að setja starfsreglur um hvernig beri að vinna í því þjóðfélagi sem við búum við í dag.


Í stefnu borgarinnar segir m.a. “allar stofnanir borgarinnar þurfa að laga sig að fjölmenningarlegu samfélagi…” einnig segir “Þeir sem fyrir eru þurfa að aðlagast íbúum af mismunandi uppruna” og að lokum segir: “Leggja þarf sérstaka áherslu á fyrirbyggjandi starf, fræðslu um fordóma og fjölmenningarlega kennslu innan uppeldisstofnana í þessu sambandi”.

Siðmennt vill varpa fram þeirri spurningu hvort unnið sé eftir þessari stefnu í skólum borgarinnar? Er tekið tillit til þess að fólk hafi ólíkar lífsskoðanir?

Siðmennt telur að dæmin sýni að misbrestur sé á að hlutleysis sé gætt í skólum. Hafa fjölmargir foreldrar haft samband við Siðmennt og kvartað undan því að trúaráróður, kirkjuheimsóknir, bænahald og annar óeðlilegur trúarlegur áróður sé stundaður í skólum barna þeirra.Trúaruppeldi á ekki að vera á verksviði skóla- eða stofnanna á vegum Reykjavíkurborgar. Trúaruppeldi á að vera á ábyrgð foreldra og heimila.

Er það von stjórnar Siðmenntar að með þessum fyrirspurnum skapist tækifæri til umræðu um þessi mikilvægu mál.

Sjá nánar:
Bréf Siðmenntar til Fræðsluráðs
Bréf Siðmenntar til Leikskólaráðs
Bréf Siðmenntar til Jafnréttisnefndar

Trúfrelsisstefna Siðmenntar:
http://www.sidmennt.is/trufrelsi/
Óeðlileg tengsl trúar og skóla:
http://www.sidmennt.is/trufrelsi/skoli.php

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Hólm Gunnarsson, varaformaður Siðmenntar.
Sími: 898-7585
Netfang: sidmennt@sidmennt.is

Til baka í yfirlit