Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Að deyja með reisn – Líknardauði (Málþing)

Siðmennt boðar til málþings um líknardauða fimmtudaginn 29. janúar næstkomandi kl. 17:00 til 18:30 á Hótel Sögu.

Markmiðið er að fjalla um þetta viðkvæma málefni út frá sjónarhóli heimspekinnar og út frá upplifun aðstandenda. Yfirskrift málþingsins er: „Að deyja með reisn – líknardauði”.

(Upptaka af málþinginu)

Þrír frummælendur halda stutt erindi (10 til 15 mínútur), síðan verða pallborðsumræður og spurningar úr sal bornar upp.

Frummælendur:

Jóhann Björnsson – heimspekingur og stjórnarmaður í Siðmennt
Erindi: „Er einhver nokkurn tíma betur kominn liðinn en lífs? Um líf og dauða frá sjónarhóli heimspekinnar.“

Sylviane Pétursson Lecoultre – iðjuþjálfi
Erindi: Sylviane er ekkja manns sem var með ólæknandi krabbamein og valdi að deyja líknardauða í Sviss árið 2013. Sylviane fjallar um reynslu þeirra hjóna.

Ingrid Kuhlman – framkvæmdastjóri
Erindi: „Pabbi vildi fá að deyja“ – Faðir Ingridar, Ton Kuhlman sem var hollenskur ríkisborgari, var með þeim fyrstu til að fá ósk um líknardauða uppfyllta.

Fundastjórn:
Sigurður Hólm Gunnarsson – iðjuþjálfi og stjórnarmaður í Siðmennt.

Hvenær: Fimmtudaginn 29. janúar kl. 17:00 – 18:30
Hvar: Hótel Saga  – Salur: Snæfell
Kostnaður: Aðgangur er heimill öllum og er ókeypis

Málþingið fer fram á íslensku.

_________
Nánari upplýsingar um málþingið veita:
Jóhann Björnsson – heimspekingur og stjórnarmaður í Siðmennt. Sími: 844-9211. Netfang: johann@sidmennt.is
Sigurður Hólm Gunnarsson – stjórnarmaður í Siðmennt. Sími: 898-7585. Netfang: siggi@sidmennt.is

Skráið ykkur á málþingið á Facebook: https://www.facebook.com/events/636159249822590/

Siðmennt: www.sidmennt.is

[contentblock id=liknardaudi]

Til baka í yfirlit