Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Borgaraleg ferming 29. apríl 2007

Mikilvægar upplýsingar er varða fermingarathöfnina.
(Þessar upplýsingar hafa einnig verið sendar bréfleiðis til þátttakenda)

Kæra fermingarbarn, foreldri eða forráðamaður!
Nú eru línur varðandi fermingarathöfnina farnar að skýrast og því tímabært að láta ykkur vita um gang mála.


Undirbúningur athafnarinnar
Hjálagt eru listar yfir hvaða börn verða í hvorri athöfn. Vinsamlegast athugið hvort þetta sé rétt vegna þess að þetta fer bráðum í prentun.
Nokkur fermingarbörn eru nú að æfa dagskrá með tónlistarflutningi og upplestri. Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri mun hafa samband við börnin, sem ætla að lesa upp, og bjóða þeim heim til að leiðbeina þeim.

Ræðumenn í ár verða Gunnar Hersveinn rithöfundur og Halla Gunnarsdóttir blaðamaður. Þau flytja stutt ávörp í báðum athöfnum. Fermingarstjórar verða Jakob Þór Einarsson í fyrri athöfn og Ásdís B. Jónsdóttir í seinni athöfn.

Fermingarathafnir
Athafnirnar fara fram sunnudaginn 29. apríl 2007 kl. 11:00 og kl. 13:30 í Háskólabíói.
Fermingarbörnin í fyrri athöfninni mæti stundvíslega kl. 10:30.
Fermingarbörnin í seinni athöfninni mæti stundvíslega kl. 13:00.

Hvor athöfn mun væntanlega standa yfir í um klukkustund. Dagskráin lofar góðu. Þar verða atriði í umsjá fermingarbarna og tónlist og stutt ávörp. Við athöfnina munu fermingarbörn fá afhent skjal sem staðfestir þátttöku þeirra í undangengnu fræðslunámskeiði.
Að athöfn lokinni fer fram hópmyndataka sem tekur væntanlega um 20 mínútur, sjá nánari upplýsingar hér að neðan.

Gestir rísa úr sætum þegar fermingarbörn ganga í salinn.
Vinsamlegast slökkvið á farsímum meðan á athöfninni stendur.

Æfingar
Æfingar fyrir fermingarathöfnina verða í Háskólabíói laugardaginn 28. apríl 2007.
kl. 9:00 fyrir börnin í fyrri athöfn og
kl. 11:00 fyrir börnin í seinni athöfn.

Öll fermingarbörn verða að mæta.
Munið að koma stundvíslega til æfingarinnar.
Komið staðráðin í að gera ykkar besta, fljótt og vel.

Allur hópurinn æfir inngöngu í sal, uppgöngu á svið, móttöku skírteina, útgöngu af sviði og uppstillingu fyrir myndatöku. Að því loknu munu þau fermingarbörn, sem verða með atriði í athöfninni, æfa sinn þátt. Þau eiga að koma með hljóðfæri, nótur, ávarp, ljóð eða annað sem nota á við athöfnina.
Aukaeintak af ljóðum, ávörpum og nótum á að afhenda fermingarstjóra á æfingunni.
Komist fermingarbarn ekki er mikilvægt að foreldri eða forráðamaður komi í þess stað. Æfingin hefst stundvíslega og þá eiga allir að vera sestir í sitt sæti í salnum. Listi með sætisnúmerum mun hanga uppi á æfingunni.

Sætafjöldi
Salurinn í Háskólabíói er með 970 sæti. Við biðjum fólk að halda sig við þann fjölda gesta sem þau hafa þegar óskað eftir.

Hópmynd
Flestir þátttakendur hafa óskað eftir að fá hópmynd. Anna Fjóla Gísladóttir ljósmyndari (s. 553 9571 / 898 3410) mun taka hana í lok athafnar í Háskólabíói. Myndin verður 30 x 24 cm, í lit og kostar 3.000 kr. Búið er að skrá þá sem hafa óskað eftir mynd. Þeir munu fá hana í pósti eða afhenta persónulega, ásamt gíróseðli.

Borgaraleg ferming á mynddiski (DVD)
Upptaka af borgaralegri fermingu 29. apríl 2007 verður fáanleg á mynddiski ásamt myndasýningu, sem fer fram í byrjun athafnarinnar, og mörgum ljósmyndum af athöfninni. Óskar Ásgeirsson,
félagi í Siðmennt, sér um upptöku og frágang. Vel verður vandað til upptökunnar og alls frágangs. Búið er að skrá þá sem hafa óskað eftir mynddiski. Eintakið kostar 3000 krónur og rennur lítill hluti í styrktarsjóð Siðmenntar. Þegar diskarnir eru tilbúnir og búið að fjölfalda þá verða þeir sendir með póstkröfu heim til þeirra sem hafa pantað þá.

Kostnaður vegna fermingarathafnarinnar
Áætlaður kostnaður vegna athafnarinnar er kr. 5.000 á hvert barn.
Þessari upphæð er ætlað að standa straum af öllum kostnaði, t.d. af húsaleiga, aðfengnum dagskráratriðum, leigu á flygli, blómaskreytingum, prentun á dagskrá og fleiru. Gíróseðill vegna þessa verður sendur út snemma í apríl. Þau börn, sem ætla ekki að taka þátt í athöfninni í Reykjavík, verða ekki rukkuð fyrir þetta gjald.

Athugið: Hópmyndin og DVD eru EKKI innifalin í gjaldi Siðmenntar vegna fermingarathafnarinnar.

Sjá nánar:
Bekkjalistar

Til baka í yfirlit