Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Upptaka af málþingi um líknardauða

Siðmennt hélt málþing um líknardauða fimmtudaginn 29. janúar 2015 á Hótel Sögu. Markmiðið var að fjalla um þetta viðkvæma málefni út frá sjónarhóli heimspekinnar og út frá upplifun aðstandenda. Yfirskrift málþingsins var: „Að deyja með reisn – líknardauði”.

Upptöku af málþinginu má skoða hér: 


Frummælendur:

Jóhann Björnsson – heimspekingur og stjórnarmaður í Siðmennt
Erindi: „Er einhver nokkurn tíma betur kominn liðinn en lífs? Um líf og dauða frá sjónarhóli heimspekinnar.“

Sylviane Pétursson Lecoultre – iðjuþjálfi
Erindi: Sylviane er ekkja manns sem var með ólæknandi krabbamein og valdi að deyja líknardauða í Sviss árið 2013. Sylviane fjallar um reynslu þeirra hjóna.

Ingrid Kuhlman – framkvæmdastjóri
Erindi: „Pabbi vildi fá að deyja“ – Faðir Ingridar, Ton Kuhlman sem var hollenskur ríkisborgari, var með þeim fyrstu til að fá ósk um líknardauða uppfyllta.

Fundastjórn:
Sigurður Hólm Gunnarsson – iðjuþjálfi og stjórnarmaður í Siðmennt.

[contentblock id=liknardaudi]

Til baka í yfirlit