Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Aukaaðalfundur Siðmenntar verður 24. apríl

Aukaaðalfundur Siðmenntar verður haldinn miðvikudaginn 24. apríl kl. 20:00 að Vesturgötu 7 í Reykjavík (ATH! Breytt staðsetning)

Á dagskrá aukaaðalfundar eru þrjú mál:

Kosning formanns
Kosning stjórnar
Kosning varamanna í stjórn

Kjörgengi og rétt til atkvæðagreiðslu á aðalfundi hafa félagar sem skráðir eru í Siðmennt hjá Þjóðskrá og/eða fólk sem er skráð beint og hefur greitt félagsgjald undangengins starfsárs. Þeir sem hafa skráð sig í félagið hjá Þjóðskrá frá og með apríl 2018 þurfa að koma með staðfestingu á aðild sinni að félaginu á fundinn. T.d. útprentaða staðfestingu frá Þjóðskrá eða skjáskot í farsíma.

Til baka í yfirlit