Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Skráning í borgaralega fermingu 2023 er hafin!

Skráning í borgaralega fermingu 2023 er hafin!

Við höfum nú opnað fyrir skráningar í borgaralegar fermingarathafnir vorið 2023 en munum hefja skráningu á námskeiðin í haust þegar allir valkostir liggja fyrir.
Skráning í borgaralega fermingu fer fram í gegnum skráningargáttina Sportabler.
Við mælum með því að fólk sæki Sportabler appið í símana sína til að fylgjast með skilaboðum og öðrum tilkynningum.


Staðfestar dagsetningar árið 2023

Silfurberg Harpa:

1. apríl kl 10, 12, 14
2. apríl kl 12, 14
15. apríl kl 10, 12, 14

Bæjarbíó Hafnarfirði:
20. apríl kl 11, 13

Landsbyggðin*:

Vestmannaeyjar, 1. apríl kl 13
Selfoss, 15. apríl kl 13
Reykjanesbær, 15. apríl kl 13
Akranes, 20. apríl kl 13
Austurland, 27. maí kl 13
Akureyri, 3. júní kl 13

Einkaathafnir:
Einnig er hægt að skrá fermingarbarnið í einkaathöfn og fá athafnastjóra í veisluna eða heimahús á dagsetningu að eigin vali.


*Athafnir á öðrum stöðum fara eftir aðsókn hverju sinni og miðað er við lágmark 3 fermingarbörn til að haldin sé hópathöfn í heimabyggð. Síðustu ár höfum við haldið athafnir á Ísafirði, Höfn, Hvammstanga og Borgarnesi. Endilega sendið á ferming@sidmennt.is ef áhugi er fyrir fermingu í heimabyggð.

Til baka í yfirlit