Í ljósi þess að yfirvöld hafa sett á samkomubann til 12. apríl n.k. hefur stjórn Siðmenntar ákveðið að fresta fermingarathöfnum þeim sem áttu að eiga sér stað í Reykjavík 5. apríl og 26. apríl og á Hvammstanga 4. apríl. Fermingarathöfnin á að vera gleðilegur viðburður í lífi hvers barns og erfitt að skapa slíkt andrúmsloft við þessar aðstæður, auk þess sem að takmarkanir hafa veruleg áhrif á stærð og umfang hverrar athafnar.
Fermingarbörnum og foreldrum þeirra verða boðnar nýjar dagsetningar í haust, eða sá kostur að velja heimafermingar í stað hópfermingarathafnar í vor. Stjórn og starfsfólk Siðmenntar munu fylgjast vel með stöðunni og taka ákvarðanir varðandi seinni fermingarhelgi eftir því sem staðan skýrist.
Í stað fermingarathafnar 5. apríl og 26. apríl verður hægt að velja eftirfarandi möguleika:
- 17. júní á höfuðborgarsvæðinu
- 29. ágúst í Háskólabíó
- 30. ágúst í Háskólabíó
- 25. október á höfuðborgarsvæðinu
- Heimafermingu gegn aukagreiðslu
Nánari upplýsingar um viðbrögð Siðmenntar við COVID-19 er að finna á sérstakri síðu: COVID-19