Aðalfundur Siðmenntar 2021 verður haldinn miðvikudaginn 17. mars kl. 19:30. Staðsetning verður auglýst síðar þegar fyrir liggur hvort óhætt verði að halda fund í raunheimum, en að öðrum kosti verður um fjarfund að ræða.
Dagskrá:
1. Kjör fundarstjóra og fundarritar
2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
3. Áritaðir reikningar fyrra árs lagðir fram til umræðu og samþykktar
4. Breytingar á lögum
5. Ákvörðun félagsgjalda
6. Kjör stjórnar, sbr. grein 5.1
7. Kjör félagslegra skoðunarmanna reikninga, sbr. grein 6.7
8. Önnur mál.
Vakin er sérstök athygli á 4.4. grein úr lögum Siðmenntar:
„Kjörgengi og rétt til atkvæðagreiðslu á aðalfundi hafa félagar sem skráðir eru í Siðmennt hjá Þjóðskrá og/eða fólk sem er skráð beint og hefur greitt félagsgjald undangengins starfsárs. Framboðsfrestur til stjórnar Siðmenntar rennur út tveimur vikum fyrir aðalfund. Náist ekki framboð til allra stjórnarsæta með 2 vikna fyrirvara má taka við framboðum á aðalfundi til þess sætis eða þeirra sæta sem í vantar.“
Skila má inn framboðum til stjórnar á sidmennt@sidmennt.is en framboðsfrestur er til miðnættis 3. mars.
Í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir á þessum ástandstímum, óskar stjórn Siðmenntar eftir því að félagar skrái sig á aðalfund fyrirfram. Skráningunni er ætlað að vera vísbending um fjölda gesta, svo hægt sé að taka ákvörðun um á hvaða vettvangi fundurinn verður.
Skráningin er hvorki bindandi né skilyrði fyrir þátttöku.
Smellið hér til að skrá ykkur á fundinn
Einnig vill stjórn félagsins minna á tilnefningar til húmanistaviðurkenningarinnar og fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar, sem afhentar verða á fundinum. Smellið hér fyrir nánari upplýsingar og til að senda inn tilnefningar.