Lög Siðmenntar
1. Heiti og hlutverk
1.1 Félagið heitir Siðmennt – félag siðrænna húmanista á Íslandi. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
1.2 Félagið er lífsskoðunarfélag í samræmi við lög nr.108/1999 með síðari breytingum.
2. Hlutverk og markmið Siðmenntar er að:
- vera málsvari húmanisma (manngildisstefnu), frjálsrar hugsunar, óháð trúarsetningum.
- fjalla um siðferði og þekkingarleit mannsins.
- standa fyrir veraldlegum og húmanískum athöfnum, svo sem nafngjöf, fermingu, giftingu, útför.
- hafa samvinnu og rækta tengsl við erlendar hreyfingar veraldlegra húmanista.
- efla og styrkja þekkingu almennings á siðrænum húmanisma og skal markmiðum félagsins frekar lýst í stefnuskrá Siðmenntar.
3. Félagsaðild -réttindi og skyldur
3.1 Félagar geta allir gerst sem vilja styðja markmið félagsins.
3.2 Félagar teljast vera; fólk sem hefur skráð nafn sitt í Siðmennt hjá Þjóðskrá Íslands, eða með skriflegri ósk um skráningu til stjórnar Siðmenntar og greiðslu félagsgjalds. Hægt er að vera skráð/ur í félagið á báða vegu.
4 Aðalfundur
4.1 Aðalfundur fer með æðsta vald í málum félagsins. Aðalfund skal halda á fyrsta fjórðungi hvers árs. Stjórn skal undirbúa aðalfund og einnig huga að starfsnefndum fyrir fundinn og komandi starfsár ef þurfa þykir.
4.2 Boðað skal til aðalfundar með fjögurra vikna fyrirvara á vefmiðlum félagsins. Jafnframt skal sent fundarboð vegna aðalfundar á tölvupóstlista félagins.
4.3 Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.
4.4 Kjörgengi og rétt til atkvæðagreiðslu á aðalfundi hafa félagar sem skráðir eru í Siðmennt hjá Þjóðskrá og/eða fólk sem er skráð beint og hefur greitt félagsgjald undangengins starfsárs. Framboðsfrestur til stjórnar Siðmenntar rennur út tveimur vikum fyrir aðalfund. Náist ekki framboð til allra stjórnarsæta með 2 vikna fyrirvara má taka við framboðum á aðalfundi til þess sætis eða þeirra sæta sem í vantar.
4.5 Aukaaðalfundur. Meirihluti stjórnar getur boðað til aukaaðalfundar ef talið er að verkefni sem fjalla á um á aðalfundi megi ekki bíða aðalfundar. Einnig geta 50 félagar óskað skriflega eftir aukaaðalfundi og skal þá tilgreint hvert fundarefni skal vera. Boða skal fundinn innan viku eftir að slík ósk hefur komið fram. Skal þá halda slíkan fund tveimur vikum eftir að boðun fer fram.
4.6 Heimilt er að kjósa heiðursfélaga á aðalfundi. Kosning heiðursfélaga skal haga þannig að stjórn félagsins ber fram tillögu á aðalfundi um hvern/hverja heiðra skuli. Kosningin er gild sé hún samþykkt af 2/3 atkvæðisbærra fundarmanna.
4.7 Dagskrá aðalfundar skal m.a. hafa eftirtalda liði:
- Kjör fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
- Áritaðir reikningar fyrra árs lagðir fram til umræðu og samþykktar
- Breytingar á lögum
- Ákvörðun félagsgjalda
- Kjör stjórnar, sbr. grein 5.1
- Kjör félagslegra skoðunarmanna reikninga, sbr. grein 6.7
- Önnur mál.
4.8 Senda skal út, viku fyrir fund, lista yfir frambjóðendur auk lagabreytingatillagna sem
borist hafa.
5. Stjórn
5.1 Stjórn skipa fimm félagsmenn og tveir til vara. Kjósa skal í stjórn, ráð, nefndir og aðrar trúnaðarstöður innan félagsins árlega nema formann. Skal kjörtímabil formanns vera tvö ár. Formaður er kosinn sérstaklega, þá annað fólk í stjórn og loks varamenn. Önnur embætti innan stjórnar eru: varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi. Ef fleiri eru í kjöri en fjöldi í stjórn segir til um skal viðhafa leynilega kosningu.
5.2 Æðsta vald Siðmenntar er í höndum stjórnar milli aðalfunda. Stjórn félagsins skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund. Á sama fundi nýkjörinnar stjórnar skal ákvarða röðun varamanna með hlutkesti. Komi til atkvæðagreiðslu á stjórnarfundum ræður einfaldur meirihluti stjórnarmanna.
5.3 Formaður stýrir fundum stjórnar og ber ásamt stjórn ábyrgð á að starfsemi félagsins sé samkvæmt lögum þess. Ritari heldur fundargerðir stjórnarfunda, varðveitir lög og fundargerðir félagsins og sér til þess að þær séu tiltækar. Gjaldkeri ábyrgist fjárreiður félagsins, heldur bókhald félagsins, varðveitir fylgiskjöl og annast nauðsynlega samningagerð í tengslum við stjórn. Varaformaður er staðgengill formanns. Að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum eftir því sem þurfa þykir hverju sinni.
5.4 Stjórn hefur umboð til að skipa ábyrgðarmenn með verkefnum félagsins hverju sinni. Umsjónaraðilar athafnaþjónustu hafa rétt til setu á stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt.
5.5 Stjórn hefur umboð til að ráða starfsfólk og semja við það um kaup og kjör.
6. Félagsfundir
6.1 Félagsfundir skulu haldnir svo oft, sem stjórn félagsins telur þörf á, eða ef 30 félagsmenn hið fæsta krefjast þess. Stjórn félagsins skal boða fundinn eigi síðar en viku eftir að beiðnin berst til stjórnar. Félagsfundir skulu boðaðir með 7 daga fyrirvara með auglýsingu á fréttapóstlista félagsins og í öðrum miðlum.
Fundinn skal boða á póstlista félagsins. Fundarefnis skal getið í auglýsingum. Fundur telst löglegur sé til hans boðað með réttum fyrirvara. Heimilt er þó að boða til fundar með skemmri fyrirvara vegna sérstakra ástæðna
7. Fjármál, starfsár
7.1 Starfsár og reikningsár félagsins er almanaksárið.
7.2 Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar. Stjórn er þó ekki heimilt að stofna til fjárskuldbindingar í nafni félagsins um meira er nemur ársinnkomu, nema að undangengnu samþykki aðalfundar.
7.3 Gjaldkeri skal kynna fjárhagslega stöðu félagsins fyrir stjórn á um hálfs árs fresti og ársreikning hið minnsta tíu dögum fyrir boðaðan aðalfund.
7.4 Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs.
7.5 Skoðaður og staðfestur ársreikningur skal lagður fram til umræðu og staðfestingar á aðalfundi.
7.6 Gjaldkeri skal á aðalfundi, fyrir hönd stjórnar, leggja fram fjárhags- og framkvæmdaáætlun til kynningar.
7.7 Kjósa skal tvo félagslega skoðunarmenn reikninga og einn til vara á aðalfundi félagsins.
8. Breytingar á lögum og félagsslit
8.1 Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi. Svo breytingar teljist samþykktar þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.
8.2 Breytingatillögur á auglýstar tillögur, sem fram koma á aðalfundi skulu vera skriflegar. Breytt lög taka gildi strax að aðalfundi loknum.
8.3 Tillögur að breytingum á lögum skulu hafa borist stjórn félagsins tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund og skulu sendar út viku fyrir fundinn.
8.4 Félaginu verður ekki slitið og ekki lagt niður nema með samþykkt tveggja aðalfunda. Meðferð tillögu um slit félagsins skal vera eins og um tillögu að breytingum á lögum félagsins sé að ræða. Síðari aðalfundur sem staðfestir slit félagsins skal ráðstafa eignum og skuldum félagsins til annarra félagasamtaka í samræmi við markmið Siðmenntar samkvæmt annarri grein laga félagsins.
Síðast breytt á aðalfundi 21. mars 2024.