Kórónafaraldurinn hefur haft margvísleg áhrif á samfélagið; bæði félagsleg og efnahagsleg. Þó vel hafi gengið að ráða niðurlögum faraldursins munu afleiðingarnar vara lengur og sumar þeirra jafnvel verða til frambúðar.
Stjórn Siðmenntar auglýsti eftir ábendingum um verðug félög eða verkefni sem ættu þátt í að koma til móts við þær áskoranir sem faraldurinn hefur í för með sér. Ákveðið var að verja fjármunum sem annars hefðu farið í alþjóðastarf en styrktarfé sjóðsins var alls ein milljón króna. Fjölmargar góðar ábendingar um verðug verkefni bárust, en stjórn valdi úr innsendum tillögum.
Eftirfarandi samtök hlutu úthlutun úr tímabundnum góðgerðasjóði Siðmenntar vegna COVID-faraldursins:
– Samtök um kvennaathvarf
– PIETA samtökin
– Andrými
Aukning í ofbeldi
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hefur aukning orðið í heimilisofbeldi í skugga faraldursins. Samtök um kvennaathvarf veita þolendum heimilisofbeldis skjól og ráðgjöf og hljóta samtökin 400.000 kr. úr góðgerðasjóði Siðmenntar.
Viðbragð gegn vanlíðan
Ástand, eins og það sem hefur ríkt hér í vor, eykur félagslega einangrun og vanlíðan fólks. Píeta samtökin eru til staðar fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum, ásamt því að sinna forvörnum og styðja við aðstandendur. Samtökin hljóta 400.000 kr. úr góðgerðasjóði Siðmenntar.
Rými fyrir jaðarsett fólk
Andrými er róttækt félagsrými sem hefur það hlutverk að útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að hittast, ásamt því að vera griðastaður fyrir jaðarhópa. Skipuleggjendur rýmisins hafa hugað að jaðarsettum einstaklingum á meðan faraldurinn hefur geisað, meðal annars með því að skipuleggja ókeypis matarmarkað, standa fyrir bókaútláni með heimsendingu og standsetja notuð hjól sem síðar voru afhent gegn frjálsum framlögum, enda samgöngur takmarkaðar í samkomubanni. Andrými hlýtur 200.000 kr. styrk úr góðgerðasjóði Siðmenntar.
Haft hefur verið samband við styrkþega og styrkirnir hafa verið afhentir.