Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, auglýsir eftir verkefnastjóra yfir athafnaþjónustu félagsins. Athafnaþjónusta Siðmenntar býður upp á athafnir á lífsins tímamótum, svo sem nafngjafarathöfn, fermingarathöfn, hjónavígslu og útför, en fyrir félagið starfa fjölmargir athafnarstjórar í verktöku. Um nýja stöðu er að ræða.
Helstu verkþættir í starfi verkefnastjórans eru:
- Samskipti við þjónustuþega og útdeiling athafna til athafnastjóra.
- Utanumhald um skráningu athafna og almenn umsýsla athafnaþjónustu.
- Ráðgjöf og stuðningur við athafnastjóra félagsins.
- Skipulagning þjálfunar, fræðslu og símenntunar athafnarstjóra.
- Aðkoma að skipulagi og framkvæmd stærstu viðburða félagsins, s.s. fermingarathafna.
- Markaðsmál athafnaþjónustu og e.t.v. annarra þátta í starfsemi félagsins.
- Gæðastjórnun athafnaþjónustu.
- Hönnun, innleiðing og uppfærsla verkferla og verklagsreglna
- Samskipti við stofnanir, yfirvöld og alþjóðasamtök húmanista er varða athafnaþjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af verkefnastjórnun, menntun/vottun kostur.
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
- Góð almenn tölvufærni.
- Góð enskukunnátta skilyrði. Færni í fleiri tungumálum kostur.
- Þekking og reynsla af markaðsmálum og starfi félagasamtaka kostur.
- Samsömun með húmanískum gildum og almennur áhugi og þekking á starfi Siðmenntar er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Siggeir F. Ævarsson, framkvæmdastjóri Siðmenntar í síma 612-3295 eða á siggeir@sidmennt.is - Allar umsóknir skulu berast í gegnum Alfred.is