Tilkynning frá Siðmennt um breytingu á lokadegi seinskráningar í borgaralega fermingu.
Ljóst er að annað árið í röð er met þátttaka í borgaralegri fermingu. Allir námskeiðshópar eru því fullir og þurfti að bæta við nýjum hópi til að mæta þessum auknu vinsældum. Ungmennin eru nálægt tvö hundruð. Auk Reykjavíkur verða haldin námskeið á Akureyri og Selfossi.
Leyfa átti seinskráningar til 20. desember, en sökum þessarar stöðu verður að hætta viðtöku skráninga eftir morgundaginn, 15. desember 2010. Í dag og á morgun eru því síðustu forvöð til að tilkynna þátttöku.
Siðmennt þakkar góðar viðtökur og óskar þátttakendum ánægjulegra stunda í fermingarnámskeiði félagsins 2011.