Þróun hlutfalls þeirra sem eru hlynntir aðskilnaði ríkis og kirkju meðal þeirra sem segjast hlynntir eða andvígir aðskilnaði. Gallup 1998-2015.
Mikill meirihluti (72%) er hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju meðal þeirra sem segjast hlynntir eða andvígir aðskilnaði. Er þessi niðurstaða í samræmi við niðurstöður í könnunum Gallup árin 1998 til 2015 sem allar hafa sýnt meirihlutastuðning við aðskilnað.
Tæplega helmingur svarenda er hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju en naumlega 19% andvíg honum. Hartnær þriðjungur er beggja blands.
Að sama skapi eru á bilinu 61-62% þeirra sem taka afstöðu hlynnt því að fella út ákvæði um þjóðkirkju í stjórnarskrá.
[contentblock id=konnun2015]