Laugardaginn 1. mars stendur Siðmennt fyrir heilum degi af húmanisma þar sem Siðmenntarþing og aðalfundur fer fram og mun þessum frábæra degi svo ljúka með árshátíð um kvöldið.
Fyrir hádegi verður húmanísk bókmenntahátíð þar sem fram koma Bjarni Snæbjörnsson, Bragi Páll Sigurðarson, Hope Knútsson og Linda Vilhjálmsdóttir.
Eftir hádegi verður málþing um sálgæslu. Meðal þátttakenda eru Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar, fulltrúi sálgæsluteymis presta og djákna á Landspítalanum og þá verður birt myndbandserindi frá Lindsay de Wal frá Humanists UK en hún er einnig fyrsti húmanistinn til að leiða sálgæsluteymi á breskum spítala.
Öll eru velkomin á húmaníska bókmenntahátíð og málþing Siðmenntar um sálgæslu, óháð lífsskoðun.

Nánari upplýsingar og skráning er að finna hér.
Í kjölfarið af málþinginu, eða kl. 14:00, verður aðalfundur Siðmenntar. Á aðalfundi fer fram kosning til formanns, aðalstjórnar og varastjórnar. Inga Auðbjörg Straumland hefur verið formaður Siðmenntar síðastliðinn sex ár en hún sækist ekki eftir endurkjöri á aðalfundinum.
Borist hafa þrjú framboð til formanns, fimm framboð í aðalstjórn og þrjú í varastjórn.
Í framboði til formanns eru:

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir
Sigurður Rúnarsson
Svanur Sigurbjörnsson
Í framboði til aðalstjórnar eru:
Í framboði til aðalstjórnar eru:
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir
Erla Sigurlaug Sigurðardóttir
Elsa Björg Magnúsdóttir
Kristrún Ýr Einarsdóttir
Sigurður Rúnarsson
Í framboði til varastjórnar eru:
Í framboði til varastjórnar eru:
Árni Grétar Jóhannsson
Helga Bára Bragadóttir