Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Félagsgjöld í Siðmennt hafa verið send í netbanka

Félagsgjöld í Siðmennt hafa verið send í netbanka

Félagsgjöld í Siðmennt hafa verið send í netbanka.

Um er að ræða kröfu að upphæð 6.000 kr. eða 3.000 kr. eftir atvikum sem send er til einstaklinga sem skráð sig hafa beint í félagið í gegnum heimasíðu þess. Krafan er vaxtalaus og fellur niður um næstu áramót hafi hún ekki verið greidd.

Til að vera meðlimur í Siðmennt þarf að greiða félagsgjald, annað hvort með því að vera skráð í Siðmennt í Þjóðskrá og velja að láta sóknargjöld sín renna til félagsins, eða með því að skrá sig beint í félagið og greiða árlegt félagsgjald (6.000 kr. skv. ákvörðun á aðalfundi þann 1. mars 2025) sem sent er í netbanka eftir aðalfund ár hvert. Eldri borgarar, öryrkjar og nemar fá 50% afslátt.

Sum kjósa jafnvel að gera bæði, og styrkja félagið þannig með beinu félagsgjaldi og sóknargjöldum.

Félagsgjaldið er einn af mikilvægum tekjustofnum félagsins sem er því nauðsynlegur til þess að hægt sé að halda uppi skrifstofu og halda viðburði sem eru til þess fallnir að efla félagið.

Siðmennt kann því kærlega að meta þessi fjárframlög sem nýtt eru til góðra verka.

Sé ekki áhugi fyrir frekari félagsaðild í Siðmennt er bent á að senda póst á sidmennt@sidmennt.is. Verður krafan felld niður og viðkomandi tekin af félagatali Siðmenntar.

Til baka í yfirlit