Siðmennt býður nú upp á möguleikan á einföldum löglegum hjónavígslum einn föstudag í vetur í Ráðhúsi Reykjavíkur frá klukkan 11:00-15:00.
Athafnirnar taka um 10 mínútur hver og heildartímin um 20 mínútur. Gestir eru velkomnir en ekki nauðsynlegir að undanskildum einum votti.
Þetta er til að mæta auknum áhuga á giftingum á skrifstofu félagsins með stuttum fyrirvara.
Dagsetningar sem eru í boði í vetur:
20. september
18. október
22. nóvember
Nánari upplýsingar um verð og skráningu má finna hér