Mánudaginn 21. júní, næstkomandi, mun bandaríski heimspekingurinn Daniel C. Dennett halda fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík. Fyrirlesturinn, sem ber yfirskriftina, “A human mind as an upsided-down brain“ hefst klukkan 16:00 í stofunni Bellatrix (M1.01).
Dennett er með þekktari fyrirlesurum samtímans og mikilvirkur fræðimaður á sviði heimspeki hugans, vísindaheimspeki og hugrænna vísinda (e. philosophy of mind, philosophy of science, cognitive science). Dennett hefur einnig fjallað mjög um þróunarkenningu og trúmál.
Heimasíða Dennetts: http://ase.tufts.edu/cogstud/incbios/dennettd/dennettd.htm
Fyrirlestrar Dennetts á TED.com: http://www.ted.com/search?q=dennett&x=0&y=0
Wikipedia um Dennett: http://en.wikipedia.org/wiki/Daniel_Dennett