Borgaraleg ferming verður haldin sunnudaginn 17. apríl kl. 11:00 í Háskólabíói. Í ár fermast 93 borgaralega og hefur fermingarhópurinn aldrei verið fjölmennari.
Fermingarbörn ganga í salinn undir trompetleik
Gestir rísa úr sætum
Athöfnin sett
Sigrún Valbergsdóttir, leikstjóri
Stjörnuhrap
Röskva Vigfúsdóttir og Þórdís Alda Þórðardóttir fermingarbörn, Hilda Hrönn Guðmundsdóttir, Sólveig Auður Bergmann og Valgerður Árnadóttir
sýna frumsaminn dans
Ávarp
Felix Bergsson, sjónvarpsmaður og leikari
Ferðin langa
Hörður Barðdal fermingarbarn syngur ásamt föður sínum, Bjarna Tryggva, tónlistarmanni. Lag og texti er eftir Bjarna Tryggva
Ljóðalestur
Aðalheiður Karlotta Guðlaugsdóttir fermingarbarn les Bréf eftir Þórð Helgason.
Linda Ramdani fermingarbarn les úr Einræðum Starkaðar eftir Einar Benediktsson
Crazy little thing called love
Magnús Ingvar Ágústsson, Sigurður Ingi Einarsson og Tómas Hrafn Ágústsson fermingarbörn flytja lag eftir Queen á bassa, trommur og gítar
Ávarp
Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona
Johnny goes riding
Hljómsveitin Mania Locus, þeir Einar Þórarinsson og Stefán Andri Lárusson fermingarbörn, og Axel Björnsson, flytur eigið lag
Imagine
Ásdís Rósa Hafliðadóttir fermingarbarn les ljóð John Lennons í þýðingu sinni
Afhending skírteina
Jóhann Björnsson, kennari fermingarbarnanna
Athöfn slitið
Sigrún Valbergsdóttir, leikstjóri
Fermingarbörn ganga úr salnum undir trompetleik