Veraldleg nafngjöf
Ólíkt trúarlegri skírn er veraldleg nafngjöf ekki vígsla inn í söfnuð og ekki er farið fram á trúarjátningu eða játningu á veraldlegum lífsskoðunum. Með ákvörðun sinni um að velja veraldlega athöfn veita foreldrarnir barninu frelsi til að ákveða sjálft hvaða lífsskoðun það kýs að aðhyllast síðar meir á ævinni, þegar það hefur aldur og þroska til.
Athafnir Siðmenntar innihalda ekki hugmyndafræðilegar játningar af neinu tagi. Þær eru miðaðar að þörfum fólks með veraldlegar/húmanískar lífsskoðanir, en eru opnar öllum óháð lífsskoðun, t.d. trúuðu fólki sem af einhverjum ástæðum óskar ekki eftir trúarlegri athöfn. Í athöfnum Siðmenntar er lögð áhersla á siðrænan boðskap og hið sammannlega.
Nafngjafarathöfn á vegum Siðmenntar snýst því ekki um að velja einhverja ákveðna lífsskoðun (trúarlega eða veraldlega) fyrir barnið, heldur eingöngu að gefa barninu nafn á formlegan máta, gleðjast með fjölskyldunni og gefa tilefninu siðrænan og ígrundaðan blæ með hugvekju athafnarstjórans.
Uppbygging nafngjafaathafna
Foreldrar með ungabarn sitt og athafnarstjórin koma sér fyrir miðsvæðis og (val: eftir að búið er að kveikja á kerti) tekur athafnarstjórinn til máls og kynnir athöfnina stuttlega. Kynningu er stundum sleppt ef að flestir viðstaddir vita út á hvað veraldleg nafngjöf gengur. Að því loknu fer athafnarstjórinn með stutta hugvekju sem tengist börnum, uppeldi, þroska og foreldrahlutverkinu ásamt ánægjunni yfir því að eiga barn. Þá er spurt um hvað barnið eigi að heita og nafninu svo fagnað.
Stundum eru tveir verndarar tilnefndir og loforð fengið hjá þeim um að vera sérstakir stuðningsmenn barnsins og foreldra þess. Í sumum tilfellum er barninu fært blóm og þá lesinn táknrænn texti um samlíkingu þess að hlúa að vexti barns líkt og viðkvæmu blómi. Að stuttum lokaorðum loknum er athöfninni lokið. Inn á milli þessara þátta má blanda inn flutningi tónlistar eða lestri ljóða, allt eftir óskum. Athöfnin tekur um 15-20 mínútur en lengur ef tónlistarflutningur er mikill.
Kostnaður
Siðmennt setur upp ákveðið gjald fyrir hverja athöfn og í því felst kaup athafnarstjórans og umsýsla. Ferðakostnað þarf að greiða ef með þarf og er greitt akstursgjald samkvæmt ákvörðun fjármálaráðuneytisins hverju sinni. Akstursgjaldið er nú 184 krónur á hvern ekinn kílómetra. Gisting/dagpeningar ef með þarf greiðist sérstaklega.
Innifalið í kostnaði er viðtal við foreldra, ráðgjöf um nafngjöfina, ræðuskrif og annar undirbúningur.
Lagaatriði
Eina formsatrið sem þarf að uppfylla er að fylla út eyðublaðið Tilkynning um nafngjöf hjá Þjóðskrá til löglegrar skráningar á nafni barnsins fyrir sex mánaða aldurs þess. Hægt er að ganga frá því á vefsíðu Þjóðskrár, www.skra.is, og sjá foreldrar sjálfir um að skila eyðublaðinu inn.
Leiðbeiningar um útfyllingu: Þar sem stendur „millinafn“ á forminu á að rita ættarnafn ef við á. Það sem í daglegu tali er kallað millinafn er hins vegar talið til eiginnafna hjá Þjóðskrá líkt og fornafnið. T.d. „Jón Þór“ er ritað allt í línuna fyrir eiginnöfn. Svokallað kenninafn á forminu er það sem í daglegu tali er kallað eftirnafn.