Húmanísk fermingarfræðsla
Fermingarfræðsla Siðmenntar miðar að því að efla unglinga og kynna þau fyrir húmanískum hugtökum. Á námskeiðinu er lagt upp með því styrkja sjálfsmynd, hvetja til víðsýni og styðja við uppbyggilegt hugarfar.
Í hópi fermingarbarna eru ólíkir einstaklingar með ólíkar þarfir. Þess vegna bjóðum við upp á fermingarfræðslu með mismunandi sniði – lagað að hverjum og einum. Viðfangsefni fermingarfræðslunnar grundvallast í námskrá borgaralegrar fermingarfræðslu, og er nálgast þau á lifandi hátt í námskeiðunum.
Markmiðin eru alltaf þau sömu; að búa fermingarbarnið undir það að komast í fullorðinna tölu.
Skráning opnar á fermingarnámskeið i haust
Kvöldnámskeið
Kvöldnámskeið eru kennd eitt eftirmiðdegi í viku í 10 vikur samfleytt. Þau henta þeim sem vilja kafa ofan í afmarkaðri viðfangsefni í einu og mæta svo galvösk viku síðar til að takast á við næsta skammt. Kvöldnámskeið eru í boði á höfuðborgarsvæðinu.
Helgarnámskeið
Helgarnámskeið eru kennd yfir tvær helgar, fjórar klukkustundir á dag í fjóra daga. Helgarnámskeið henta þeim sem vilja sökkva sér djúpt ofan í hverja meginstoð námskrárinnar fyrir sig. Helgarnámskeið eru haldin bæði á höfuðborgarsvæðinu og í helstu þéttbýliskjörnum, en staðarval er háð þátttöku hverju sinni.
Fermingarbúðir
Í ár verður aftur boðið upp á fermingarbúðir á vegum Siðmenntar: fermingarnámskeið fyrir þau fermingarbörn sem vilja taka allan pakkann á einni helgi og koma heim örþreytt, með fullt af nýjum vinum og djúpt sokkin í tilvistarlegar spurningar. Fermingarbúðir verða haldnar á Úlfljótsvatni.
Fjarnám
Boðið er upp á að taka fermingarfræðslu í fjarnámi, en það getur hentað börnum sem komast ekki á námskeið vegna landfræðilegra áskoranna, eða þeim sem hentar betur að taka þátt á stafrænum vettvangi heldur en í kennslustundum.
Þemanámskeið
Kennsluhættir út fyrir kassann!
Á þemanámskeiðum er lagt upp með óhefðbundna nálgun þar sem fermingarbörnin eru virkjuð í gegnum áhugasvið sín til að takast á við viðfangsefni námskeiðsins. Þannig verða kennsluhættirnir frábrugðnir kennsluháttum grunnnámskeiðanna og skapandi aðferðafræði notuð til að miðla viðfangsefnunum til fermingarbarnanna.
Í ár verður boðið upp á námskeið í gegnum tónlist, leiklist, íþróttir eða útivist. Þátttaka í þemanámskeiði kemur í stað þátttöku í öðrum fermingarnámskeiðum.