Kostnaður
Verðskrá 2025:
Hópathöfn: 25.000 kr.
Helgarnámskeið: 40.000 kr.
Virk kvöld: 40.000 kr.
Fjarnámskeið: 40.000 kr.
Þemanámskeið: 53.000 kr.
Úlfljótsvatn: 65.000 kr.
* Verðskrá er birt með fyrirvara um breytingar og villur.
Gjald tengt staðsetningu athafna fyrir heimafermingar:
Akstursgjald: 184 kr/km fyrir árið 2024
Bið- & göngugjald: 10.000 kr/klst
* Akstursgjald fylgir ákvörðun fjármálaráðuneytisins og er breytilegt milli ára. Akstursgjaldið er rukkað skv. verðskrá hverju sinni á þeim tíma athöfnin fer fram.
* Fyrir athafnir utan heimasvæðis athafnarstjóra eru innheimtar 184 kr/km í aksturskostnað. Félagar í Siðmennt greiða þó ekki aksturskostnað vegna athafnar í sinni heimabyggð, nema í þeim tilfellum þar sem sérstaklega er óskað eftir athafnastjóra sem ekki býr á svæðinu.
* Dæmi: Frá Reykjavík til Þingvalla eru 95 km fram og til baka. Heildar akstursgjald væri þá 17.480 (95*184). Allir útreikningar eru byggðir á Google maps vegalengdum.
* Með bið er átt við veruleg frávik frá dagskrá, svo sem seinkun sem varðar hálftíma eða meira.
* Dæmi: Ef athafnastjóri þarf að bíða eða ganga í hálftíma bætist 5.000 kr. gjald við.
* Vinsamlegast athugið að í ákveðnum tilvikum gæti athafnastjóri þurft að gista nótt á hóteli. Sá kostnaður bætist við ferðakostnað og kostnað við athöfnina. Nánari upplýsingar veita starfsmenn Siðmenntar.
Afsláttur fyrir félaga í Siðmennt
Aðild að Siðmennt er ekki skilyrði fyrir þátttöku í Borgaralegri fermingu. Meðlimir í Siðmennt fá 10.000 kr. afslátt af námskeiðum per forráðamanneskju, að hámarki 20.000 kr., og reiknast sá afsláttur af verðinu þegar börn eru skráð á námskeið.
Eftir að barn er skráð í námskeið þarf að senda staðfestingu á að foreldri/stjúpforeldri sé skráð í félagið á ferming@sidmennt.is Við munum þá handvirkt lækka greiðsluseðilinn eða endurgreiða inná kort eftir því hvaða greiðsluleið er valinn í ferlinu í Sportabler við skráningu.
Ef systkini fermast á sama tíma, er veittur 20% afsláttur.