Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Siðmennt styrkir Kvennaathvarfið

Siðmennt – félag siðrænna húmanista á Íslandi veitti Kvennaathvarfinu styrk upp á 150 þúsund krónur í mars síðastliðnum. Styrkurinn er liður í þeirri viðleitni Siðmenntar að gefa til baka til góðra málefna nú þegar félagið hefur fengið aðild að svokölluðum sóknargjöldum.

Siðmennt hvetur almenning til að kynna sér starfsemi Kvennaathvarfsins með því skoða vefsíðu félagsins www.kvennaathvarf.is.

Til baka í yfirlit