Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Aðalfundur Siðmenntar 2022 - uppfært fundarboð

Aðalfundur Siðmenntar 2022 - uppfært fundarboð

Aðalfundur Siðmenntar 2022 verður haldinn þriðjudaginn 15. mars kl. 19:30 í sal félagsins Skipholti 50c. Streymt verður frá fundinum en athugið að ekki er um eiginlegan fjarfund að ræða, heldur eingöngu streymi.

Dagskrá:
1. Kjör fundarstjóra og fundarritar
2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
3. Áritaðir reikningar fyrra árs lagðir fram til umræðu og samþykktar
4. Breytingar á lögum
5. Ákvörðun félagsgjalda
6. Kjör stjórnar, sbr. grein 5.1
7. Kjör félagslegra skoðunarmanna reikninga, sbr. grein 6.7
8. Önnur mál.

Vakin er sérstök athygli á 4.4. grein úr lögum Siðmenntar:

„Kjörgengi og rétt til atkvæðagreiðslu á aðalfundi hafa félagar sem skráðir eru í Siðmennt hjá Þjóðskrá og/eða fólk sem er skráð beint og hefur greitt félagsgjald undangengins starfsárs. Framboðsfrestur til stjórnar Siðmenntar rennur út tveimur vikum fyrir aðalfund. Náist ekki framboð til allra stjórnarsæta með 2 vikna fyrirvara má taka við framboðum á aðalfundi til þess sætis eða þeirra sæta sem í vantar.“ 

Framboðsfrestur til stjórnarsetu rann út á miðnætti í gær, 1. mars. Ekki er kosið um formann að þessu sinni þar sem formaður er kjörinn til tveggja ára í senn.

Eftirfarandi fjórir einstaklingar hafa formlega gefið kost á sér til setu í aðalstjórn í þau fjögur sæti sem í boði eru:

  • Kristín Helga Schiöth
  • Kristín Sævarsdóttir
  • Sigurður Rúnarsson
  • Sveinn Atli Gunnarsson


Þrjú framboð bárust til varastjórnar, þar sem fjögur sæti eru í boði:

  • Hope Knútsson
  • Mörður Árnason
  • Stefán Rafn Sigurbjörnsson
Til baka í yfirlit