Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Neyðarfundur vegna nýrra útlendingalaga sem sviptir hóp fólks allri þjónustu

Neyðarfundur vegna nýrra útlendingalaga sem sviptir hóp fólks allri þjónustu

Sögulega stór hópur félagasamtaka auk biskups Íslands stóð saman að neyðarfundi til að ræða þá mannúðarkrísu sem upp er komin með framkvæmd nýrra útlendingalaga sem sviptir hóp fólks allri þjónustu.

Samtökin höfðu áður gefið út yfirlýsingu þar sem lýst var áhyggjum af afdrifum, öryggi og mannlegri reisn þessa hóps og lýst yfir efasemdum um að framkvæmd laganna standist mannréttindaskuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist.

Í framsögum fulltrúa samtakanna komu fram lýsingar á sárri neyð skjólstæðinga þeirra sem og skilaboð frá einstaklingum sem svipt hafa verið allri þjónustu. Skýr samstaða var um mikilvægi þess að fresta framkvæmd þjónustusviptingarinnar þar til mannúðlegri lausn hefur verið fundin. Þá var ljós andstaða framsögumanna um hugmyndir um varðhaldsbúðir, sem viðraðar hafa verið í fjölmiðlum nýlega.

Skorað var á að stjórnvöld að nýta þekkingu og reynslu samtakanna sem og sjónarmið þeirra sem finna sig í þessum aðstæðum við lausn vandans. Samtökin munu áfram ræða saman og freista þess að fá svör stjórnvalda við þeim spurningum sem fram komu á fundinum.

Barnaheill – save the children  
Biskup Íslands 
EAPN á Íslandi 
FTA - félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd  
Fríkirkjan í Reykjavík 
Geðhjálp  
GETA hjálparsamtök  
Hjálparstarf kirkjunnar 
Hjálpræðisherinn á Íslandi  
Íslandsdeild Amnesty International  
Kvenréttindafélag Íslands  
Mannréttindaskrifstofa Íslands  
No Borders 
PEPP grasrót fólks í fátækt 
Prestar innflytjenda og flóttafólks hjá þjóðkirkjunni  
Rauði Kross Íslands  
Réttur barna á flótta  
Rótin  
Samhjálp  
Samtökin 78  
Siðmennt  
Solaris  
Stígamót  
Þroskahjálp  
UN WOMEN  
UNICEF  
W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna 
Öryrkjabandalag Íslands – heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi 

Til baka í yfirlit