Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Ríkið láti af trúfélagsskráningu og hætti að greiða „sóknargjöld“

Siðmennt hvetur þingmenn til þess að breyta lögum þannig að hið opinbera hætti  að skrá og halda utan um skráningu fólks í trú- og lífsskoðunarfélög. Að auki hvetur Siðmennt til þess að greiðslu„sóknargjalda” verði hætt.

Í árlegu bréfi til þingmanna, sem er dagsett 21. september 2015 og má finna hér í viðhengi* , gerir Siðmennt grein fyrir áherslum félagsins í trúfrelsismálum. Þar segir í 3. tölulið: “Ríkið hætti skráningu trúar- og lífsskoðana með því að skrá fólk hjá Þjóðskrá. Það er andstætt persónuvernd um upplýsingagjöf einstaklinga að þurfa að gefa upp lífsskoðanir sínar.“

Einnig segir í 5. tölulið: “Þeir sem skráðir eru utan trúar- og lífsskoðunarfélaga greiði ekki trúfélagaskatt (sóknargjald). Í 2. mgr. 64 stjórnarskrárinnar segir að þeir sem ekki eru skráðir í trúfélag skulu greiða sama skatt og aðrir (svokallað sóknargjald) en hann renni í ríkissjóð. Siðmennt telur að afnema eigi þessa kvöð svo þeir sem eru utan allra félaga greiði ekki skatt eingöngu fyrir það vera ekki í félagi – það er mismunun.”

Í tilkynningu frá Þjóðskrá 2. desember er fjallað um breytingar á trúfélagsaðild á árinu.** Frá upphafi ársins hefur skráðum félagsmönnum í Siðmennt fjölgað um 40% en þeir voru í upphafi árs 1.020 og en eru nú 1.427. Samtímis fækkar hratt í Þjóðkirkjunni. Á þessu tímabili skráðu sig yfir 3.100 manns í Trúfélagið Zuism en í byrjun árs voru félagsmenn aðeins fjórir. Ein af helstu kröfum Zúista er sú sama og Siðmennt hefur haldið á lofti: Að ríkið hætti afskiptum af skráningu fólks í trú- og lífsskoðunarfélög og hætti að greiða “sóknargjöldin”.

Hvetur því stjórn Siðmenntar Alþingismenn að vinna að breytingum á kerfinu. Það eru sjálfsögð réttindi að fólk sem er skráð utan trúfélaga greiði ekki trúfélagsskatt.

f.h. Siðmenntar

Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri

*http://sidmennt.is/wp-content/uploads/Br%C3%A9f-til-%C3%BEingmanna-sept-2015.pdf
**http://www.skra.is/um-okkur/frettir/frett/2015/12/02/Fjoldi-einstaklinga-eftir-tru-eda-lifsskodunarfelogum/

Fréttatilkynning á pdf formi

Til baka í yfirlit