Þetta er upplýsingasíða fyrir borgaralega fermingu 2013

Upplýsingasíðan verður uppfærð reglulega með nýjum upplýsingum.

Mikilvægt að vita

  • Hópmyndir og DVD upptökur: Hér getur þú pantað hópmyndir og DVD/BluRay upptökur frá fermingarathöfnum Siðmenntar 2013.
  • Skráningu í Borgaralega fermingu 2013 er lokið en hún stóð formlega yfir til 30. nóvember 2012.
  • Kynningarfundur verður haldinn í Háskólabíó 10 nóvember 2012. Þeir sem hafa þegar skráð hafa fengið fundarboð á kynningarfundinn sent með tölvupósti.
  • Staðfestar dagsetningar fyrir borgaralegar fermingarathafnir 2013:
    • 14. apríl 2013 í Háskólabíó í Reykjavík - Fyrri athöfn hefst klukkan 11:00, sú seinni klukkan 13:30.
    • 21. apríl 2013 í Salnum í Kópavogi – Fyrri athöfn hefst klukkan 11:00, sú seinni klukkan 13:30.
    • 12. maí 2013 í Hofi á Akureyri – Athöfnin hefst klukkan 13:30.
    • 22. júní 2013 í Hallormsstaðaskógi - Athöfnin hefst klukkan 14:00.

Fara á skráningarsíðu

Mikilvæg skjöl

  • Kynningarfundarboð, sent á foreldra allra fermingarbarna. Ætlað til að tilkynna kynningarfund fyrir þá foreldra sem eiga börn sem fermast í Reykjavík, en nýtist öllum foreldrum hvar sem þeir fermast á landinu. Sent með tölvupósti á foreldra 5. nóvember 2012.
  • BF Námskeiðslýsing
  • Glærusýning frá Kynningarfundi BF. Þetta er betrumbætt útgáfa af glærusýningunni sem var notuð á kynningarfundinum fyrir BF 2013 í Háskólabíói 10. nóvember 2012. Glærusýningin er á Microsoft Power Point formati. Einnig er hægt að nálgast sýnunguna á pdf formi hérna.
  • Val á námskeiði.
    1. Ef þú varst á kynningarfundinum og fylltir út formið sem var dreift þar, þarftu ekki að ná í þetta skjal.
    2. Ef þú átt eftir að velja námskeið náðu þá í þetta skjal. Þó er best fyrir úrvinnsluna að senda mail á Hope (hope „hjá“ sidmennt.is) með a) nafni barnsins og b) valinu á námskeiðsdeginum – það er 1. val, 2. val og 3. val.  Ekki er nauðsynlegt að fylla út skjalið (þó það sé hægt), vista eða prenta/skanna og senda á Hope. Bara senda nafn barnsins og valið í textaformi.
  • Jólabréf BF 2013
  • Listi fermingarbarna í BF 2013 með námskeiðsvali og athöfn
  • Listi fermingarbarna í BF 2013 eftir athöfnum. Uppfært 20. mars 2013. Þessi listi er til grundvallar þeim lista sem verður prentaður í fermingarprogrömmin og fermingarskírteinin eru gerð eftir og því þarf allt að vera 100% rétt á honum.
  • Fermingarbörn sem verða með atriði í athöfnum BF 2013. Þetta er listi yfir þau fermingarbörn sem verða með atriði í fermingarathöfnunum á höfuðborgarsvæðinu 2013.
  • Upplýsingahefti fyrir athafnir í RVK og Kóp. Þetta er upplýsingahefti sem var sent í tölvupósti á foreldra fermingarbarna í athöfnunum á höfuðborgarsvæðinu 23. mars 2013.

 

Athugið að flest skjalanna hérna eru á PDF formati en til þess að geta opnað þau getur verið nauðsynlegt að vera með PDF skoðara (PDF viewer) uppsettann í tölvunni sinni. Við mælum með Adobe Reader (sá klassíski) eða Foxit Reader (tekur mun minna pláss á tölvunni).

Síðast uppfært 23. mars 2013

Athugasemdir

  1. Linda Eygló segir:

    sæl
    strákurinn minn er að fara fermast 12 mai 2013 á akureyri hjá ykkur. Eru athafninar fyrir eða eftir hádegi hjá ykkur?
    kv. Linda

    1. Athöfnin á Akureyri 12. maí 2013 hefst kl.13:30 og verður ca. 1 klst.

  2. Sæl
    Stelpan mín er að spá í að fermast borgaralega á Akureyri. Ein spurning sem ég er með í huga er hvort hún gangi í félagið með þessari fermingu?
    Takk fyrir Eyrún Huld

  3. Nei, alls ekki! Borgaraleg ferming felur EKKI í sér að fermingarbarnið gangi í Siðmennt. Foreldrar þurfa ekki heldur að vera í felaginu.

  4. Þóra R. segir:

    Hvernig er með barn sem ætlar að fermast borgaralegri fermingu á Akureyri en býr ekki á staðnum, er að hugsa uppá námskeið? hvenær er það haldið? og er fólki boðið upp á gistingu ef það hefur ekki stað til að vera á?

  5. Við höfum ekki enn ákveðið dagsetningar fyrir helgarnámskeið á Akureyri næsta vetur. Við erum að vinna í þessu núna og munum ákveða tímann endanlega í þessari viku. Varðandi gistingu þá býður Siðmennt ekki upp á gistingu fyrir þátttakendur á námskeiðum sínum.

  6. Góðan dag,
    Drengurinn okkar hefur áhuga á borgaralegri fermingu næsta vor, en bróðir hans fermdist borgaralega vor 2011. Í millitíðinni höfum við flutt til Noregs þannig að ég vildi kanna hvort það væri boðið uppá borgaralega fermingarfræðslu fyrir börn sem búa utan Íslands. Eru einhver námskeið í boði hjá ykkur fyrir börn sem búa erlendis eða í dreifbýli á Íslandi?
    Kær kveðja,
    Ágústa Jónsdóttir

    1. Við erum með fjarnám. Við erum yfirleitt með nokkur börn sem eru búsett erlendis. Fjarnámið hjá okkur fer fram með tölvupósti. Kennarinn okkar, Jóhann Björnsson, heimspekingur og grunnskólakennari, sendir möppu til fermingarbarna í fjarnámi í lok desember. Um leið og 12-vikna námskeið okkar byrjar í janúar, fer Jóhann að senda stutt verkefni vikulega. Fermingarbarnið hefur viku til að svara.

      Það er misjafnt hvort fermingarbörn í fjarnámi taka þátt í athöfninni að vori. Það fer eftir því hvort það hentar fjölskyldunni að koma til íslands á þeim tíma. Ef barnið kemst ekki, sendum við fermingaskjal til ykkar. Ef þið komið t.d. um sumarið til að halda veislu, hefur Jóhann (eða annar athafnarstjóri) stundum mætt í veisluna og afhent fermingarskjalið og sagt smávegis frá námskeiðinu og tilgangi Borgaralegrar fermingar.

  7. Linda Eygló segir:

    sæl
    Afþví það hefur verið ákveðið að halda ekki kynningarfund á Akureyri þá er ég svo hrædd um að missa af einhverju af því maður veit ekkert hvað við erum að fara út í. En hvað mega vera margir við athöfnina frá hverju barni í Hofi 12 mai 2013?
    kveðja Linda

Athugasemdir

Ritað
30. apríl 2012
Höfundur
Linda Eygló

sæl
strákurinn minn er að fara fermast 12 mai 2013 á akureyri hjá ykkur. Eru athafninar fyrir eða eftir hádegi hjá ykkur?
kv. Linda

Ritað
1. maí 2012
Höfundur
Hope Knútsson

Athöfnin á Akureyri 12. maí 2013 hefst kl.13:30 og verður ca. 1 klst.

Ritað
20. maí 2012
Höfundur
Eyrún Huld Ásvaldsdóttir

Sæl
Stelpan mín er að spá í að fermast borgaralega á Akureyri. Ein spurning sem ég er með í huga er hvort hún gangi í félagið með þessari fermingu?
Takk fyrir Eyrún Huld

Ritað
20. maí 2012
Höfundur
Hope Knútsson

Nei, alls ekki! Borgaraleg ferming felur EKKI í sér að fermingarbarnið gangi í Siðmennt. Foreldrar þurfa ekki heldur að vera í felaginu.

Ritað
27. ág. 2012
Höfundur
Þóra R.

Hvernig er með barn sem ætlar að fermast borgaralegri fermingu á Akureyri en býr ekki á staðnum, er að hugsa uppá námskeið? hvenær er það haldið? og er fólki boðið upp á gistingu ef það hefur ekki stað til að vera á?

Ritað
29. ág. 2012
Höfundur
Hope Knútsson

Við höfum ekki enn ákveðið dagsetningar fyrir helgarnámskeið á Akureyri næsta vetur. Við erum að vinna í þessu núna og munum ákveða tímann endanlega í þessari viku. Varðandi gistingu þá býður Siðmennt ekki upp á gistingu fyrir þátttakendur á námskeiðum sínum.

Ritað
25. sept. 2012
Höfundur
Agusta Jonsdottir

Góðan dag,
Drengurinn okkar hefur áhuga á borgaralegri fermingu næsta vor, en bróðir hans fermdist borgaralega vor 2011. Í millitíðinni höfum við flutt til Noregs þannig að ég vildi kanna hvort það væri boðið uppá borgaralega fermingarfræðslu fyrir börn sem búa utan Íslands. Eru einhver námskeið í boði hjá ykkur fyrir börn sem búa erlendis eða í dreifbýli á Íslandi?
Kær kveðja,
Ágústa Jónsdóttir

Ritað
5. nóv. 2012
Höfundur
Hope Knútsson

Við erum með fjarnám. Við erum yfirleitt með nokkur börn sem eru búsett erlendis. Fjarnámið hjá okkur fer fram með tölvupósti. Kennarinn okkar, Jóhann Björnsson, heimspekingur og grunnskólakennari, sendir möppu til fermingarbarna í fjarnámi í lok desember. Um leið og 12-vikna námskeið okkar byrjar í janúar, fer Jóhann að senda stutt verkefni vikulega. Fermingarbarnið hefur viku til að svara.

Það er misjafnt hvort fermingarbörn í fjarnámi taka þátt í athöfninni að vori. Það fer eftir því hvort það hentar fjölskyldunni að koma til íslands á þeim tíma. Ef barnið kemst ekki, sendum við fermingaskjal til ykkar. Ef þið komið t.d. um sumarið til að halda veislu, hefur Jóhann (eða annar athafnarstjóri) stundum mætt í veisluna og afhent fermingarskjalið og sagt smávegis frá námskeiðinu og tilgangi Borgaralegrar fermingar.

Ritað
22. okt. 2012
Höfundur
Linda Eygló

sæl
Afþví það hefur verið ákveðið að halda ekki kynningarfund á Akureyri þá er ég svo hrædd um að missa af einhverju af því maður veit ekkert hvað við erum að fara út í. En hvað mega vera margir við athöfnina frá hverju barni í Hofi 12 mai 2013?
kveðja Linda

Skildu eftir athugasemd


Login