Þetta er upplýsingasíða fyrir borgaralega fermingu 2012
Upplýsingasíðan verður uppfærð reglulega með nýjum upplýsingum.
Mikilvægt að vita
- Skráningu í BF 2012 er nú lokið en hún stóð formlega yfir til 30. nóvember 2011. Eru öll námskeið nú fullskipuð og byrja þau fyrstu í 2. viku í janúar 2012 (mánudagsnámskeiðið 9. jan).
- Athafnirnar í Reykjavík árið 2012 verða 15. apríl og fara fram í Háskólabíói. Fyrri athöfn kl 11:00 og seinni athöfn kl 14:00.
- Athöfnin á Akureyri árið 2012 verður 13. maí og fer fram í Hofi.
- Athafnir verða haldnar í fyrsta sinn í Kópavogi 2012 og verða 22. apríl í Salnum. Eru þær opnar fyrir börn úr Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Álftanesi og af Suðurnesjum. Fyrri athöfn kl 11:00 og seinni athöfn kl 13:30.
- Athöfnin á Selfossi verður haldin laugardaginn 28. apríl.
- Athöfnin á Fljótsdalshéraði verður haldin um miðjan júní.
Sjá: Skráning í borgaralega fermingu
Mikilvæg skjöl
- Kynningarfundarboð, sent á foreldra allra fermingarbarna. Ætlað til að tilkynna kynningarfund fyrir þá foreldra sem eiga börn sem fermast í Reykjavík, en nýtist öllum foreldrum hvar sem þeir fermast á landinu. Sent með tölvupósti á foreldra 5. nóvember 2011.
- BF námskeiðslýsing
- Upplýsingar um undirbúningsnámskeið BF
- Kynningarfundur vegna BF 2012 slideshow. Þetta er glærusýningin sem var notuð á kynningarfundinum fyrir BF 2012 í Háskólabíói 12. nóvember 2011. Glærusýningin er á Microsoft Power Point formati.
- Upplysingahefti BF 2012 og nafnalisti með vali á námskeiði og athöfn, póstlagt 15. des til foreldra allra fermingarbarna.
- 2 Spurningar Spurningar er varðar a) Löngun fermingarbarna til þess að koma fram í athöfn og b) Tillögur frá foreldrum um fyrirlesara í athöfnum.
- Listi með nöfnum og athöfnum Þetta er listi með nöfnum fermingarbarna og í hvaða athöfnum þau eru.
Athugið að flest skjalanna hérna eru á PDF formati en til þess að geta opnað þau getur verið nauðsynlegt að vera með PDF skoðara (PDF viewer) uppsettann í tölvunni sinni. Við mælum með Adobe Reader (sá klassíski) eða Foxit Reader (tekur mun minna pláss á tölvunni).
Athugasemdir
Ritað
11. okt. 2011Höfundur
Erlendur Rúnar Reynisson 13 ára :)ég gat ekki fundið neinar upplýsingar á þessari síðu um hvenær við eigum að mæta í fræðslu tímana. myndi helst vilja að vita
.
Ritað
11. okt. 2011Höfundur
Hope (formaður Siðmenntar)Hvar býrðu? Námskeiðin í Reykjavík byrja aðra vikuna í janúar. Ef þú ert skráður, færðu fundarboð á kynningarfundinn sem er 12. nóvember. Vinsamlegast hafðu samband með tölvupósti.