Hér má sjá stutt kynningarmyndband um heimsþing húmanista sem haldið verður í Osló dagana 12.-14. ágúst 2011.
Hér má sjá stutt kynningarmyndband um heimsþing húmanista sem haldið verður í Osló dagana 12.-14. ágúst 2011.
Samtökin Center for Inquiry gáfu nýverið út þetta líflega og skemmtilega myndskeið til að minna á tilveru trúlausra í Bandaríkjunum. Myndskeiðið er aðeins 1 mínúta á lengd en kemur engu að síður mörgu til skila.
Húmanískar giftingar eru vinsælli en kaþólskar giftingar í Skotlandi. IHEU segir frá þessu á heimasíðu sinni hér.
Húmanískar giftingarathafnir er þriðja vinsælasta athafnarformið fyrir giftingar og sú eina sem hefur aukist í vinsældum. Húmanískar giftingar voru gerðar löglegar í skotlandi í júní 2005 sem gerir Skotland eitt af aðeins sex löndum þar sem húmanísk gifting er lagalega bindandi.
L I F E R I N G er veraldlega þenkjandi félag allsgáðra alkóhólista og vímuefnafíkla sem leggur áherslu á sjálfshjálp og sjálfsábyrgð þeirra sem vilja berjast gegn áfengis – og vímuefnanauð sinni. Félagið er óháð trúarlegum viðhorfum og söfnuðum. Geta allir tekið þátt í störfum þess, hverjar sem lífsskoðanir þeirra eru, enda er ekki gerð krafa um að fólk temji sér ákveðin markmið umfram bindindi á áfengi og vímuefni.
Félagið byggist á sjálfshjálparhópum sem hafa það eitt markmið að styðja alla sem haldnir eru áfengis– eða vímuefnafíkn og vilja í einlægni halda bindindi.
Fundir félagsins einkennast af persónulegri tjáningu og hreinskiptum samræðum þar sem einlæg og uppbyggileg viðhorf eru höfð að leiðarljósi. Hvetur félagið til vísindalegra rannsókna á áfengisfíkn og annarri vímuefnanauð.
Fundir félagsins eru þrír vikulega:
- í Von húsi SÁÁ Efstaleiti 7 efri hæð miðvikudaga kl. 18
- í Von húsi SÁÁ Efstaleiti 7 efri hæð föstudaga kl. 18
- í Brautarholti 8, efri hæð laugardaga kl. 12
_________________
L I F E R I N G – EMPOWER YOUR SOBER SELF
Heimsþing húmanista árið 2011 verður haldið í Osló í dagana 12.-14. ágúst 2011. Hér á eftir kemur tilkynningin frá IHEU (International Humanist and Ethical Union) á ensku. Það má fylgjast með þinginu sem haldið verður af IHEU á Twitter, YouTube, FaceBook og að sjálfsögðu á heimasíðu samtakanna.
Lesið meira um þingið eða skráið ykkur á það með því að heimsækja: www.human.no/oslo2011.
Siðmennt - félag siðrænna húmanista á Íslandi
Æsufelli 4 - 111 Reykjavík
Sími: 557 3734
Netfang: sidmennt@sidmennt.is