
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
Ræða innanríkisráðherra við afhendingu viðurkenninga Siðmenntar 3. nóvember 2011
Guðsótti og góðir siðir, segja menn. Óttinn við Guð er upphaf viskunnar. Það kenndi Gamla Testamentið.
En hvað gerist ef óttinn er tekinn út úr jöfnunni? Ef Guð bregður sér frá? Verður þá allt stjórnlaust einsog í barnaskólabekk, þegar kennarinn fer fram? Eða getur verið að réttlætiskennd, heiðarleiki, samúð og kærleikur séu manninum eiginleg? Höfum við samvisku? Hvaðan kemur hún?
Hvert sem svarið er, þá er ljóst að hvorki Guð né ótti er forsenda góðra siða.
Samviskan er okkur ásköpuð og eiginleg og gott uppeldi ræktar hana og þroskar. Og best þroskumst við í óttaleysi. Og kærleika.
Fjöldi fólks velur að lifa án trúarbragða en fæstir myndu kjósa líf án kærleika. Kærleikur er upphaf viskunnar, ekki ótti. Ótti leiðir til vanlíðunar og vondra verka. Nýja Testamentið tekst á við ótta með allt öðrum hætti en Gamla Testamentið og önnur trúarbrögð hafa óþrjótandi svör til þeirra sem spyrja.







Um Siðmennt
Borgaraleg ferming
Nafngjöf
Gifting
Útför
Trúfrelsi
Hafðu samband

Í morgun flutti Hulda Þórisdóttir, Ph.D. í sálfræði, hugvekju á vegum Siðmenntar í athöfn þeirri sem félagið bauð alþingismönnum fyrir setningu Alþingis 1. október. Hulda er lektor við HÍ og er þekkt fyrir það m.a. að hún skrifaði sálfræðilegt mat á fjármálahruninu í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.


