Fara á efnissvæði

Veraldleg útför

Veraldleg útför er kveðjuathöfn sem er sniðin að þörfum fólks með veraldlegar eða húmanískar lífsskoðanir. Útfarir á vegum Siðmenntar standa öllum til boða, óháð lífsskoðunum. Áhersla er lögð á hið sammannlega og eru m.a. flutt innihaldsrík og viðeigandi orð úr bókmenntum og heimspeki.

Gjald 2023 80.000 kr.
Afsláttur fyrir félaga í Siðmennt 40.000 kr. ef meðlimur
Hvað er veraldleg útför?

Veraldleg útför fer fram til að minnast á formlegan og virðulegan máta látins ættingja eða vinar. Athafnir Siðmenntar innihalda ekki hugmyndafræðilegar játningar af neinu tagi. Þær eru miðaðar að þörfum fólks með veraldlegar/húmanískar lífsskoðanir, en eru opnar öllum óháð lífsskoðun, t.d. trúuðu fólki sem af einhverjum ástæðum óskar ekki eftir trúarlegri athöfn. Í athöfnum Siðmenntar er lögð áhersla á hið sammannlega.

Yfirbragð athafnarinnar getur ekki verið trúarlegt, þ.e. trúarlegir sálmar eða ljóð verða ekki hluti af athöfninni. Á þessu geta þó verið einhverjar takmarkaðar undantekningar undir sérstökum kringumstæðum (t.d. ef einhver trúaður ættingi óskar eftir að fara með eitthvað trúarlegt efni). Fólki sem vill byggja athafnir sínar á trú er því góðfúslega bent á að leita til trúfélags.

Hvar fara veraldlegar útfarir fram?

Útfarir geta farið fram í hvaða húsnæði sem er sem henta þykir, en þar sem ekki er um trúarlegar athafnir að ræða eru veraldleg salarkynni æskilegri en kirkjur.

Siðmennt leitast ekki eftir að halda athafnir í kirkjum en hefur sýnt því fólki sem hefur óskað þess skilning og almennt stýra athafnastjórar okkar athöfnum þar sem eftir því er óskað.

Þær kapellur og kirkjur sem eru reistar fyrir kirkjugarðsgjöld eins og bænhusið, kapellan og kirkjan í Fossvogi og kapellan á Akureyri eru sameign þjóðarinnar og standa öllum aðstandendum til afnota endurgjaldslaust óháð trúar-og lífsskoðun. Siðmennt hefur stýrt fjölmörgum útförum í kirkjunni og kapellunni í Fossvogi.

Annars er hægt að halda athöfnina í ýmiskonar hentugum sölum sem eru til útleigu. Útfarir á vegum Siðmenntar hafa m.a. farið fram í Iðnó, Söngskóla Bjarkar, Hannesarholti, Fáksheiminu Elliðaárdal og úti á landsbyggði t.d. í Byggðasafninu á Akranesi og í félagsheimilinu Laugaborg á Hrafnagili í Eyjafirði.

Þess ber að geta að Þjóðkirkjan leyfir almennt ekki að athafnastjórar Siðmenntar stýri athöfnum í sínu húsnæði.

Uppbygging veraldegra útfara

Þegar óskað er eftir athafnaþjónustu Siðmenntar fundar athafnastjóri með aðstandendum og fer í gegnum sögu hins látna með þeim og hugar að minningum og atriðum sem gott er að ræða í sorginni. Athafnastjóri aðstoðar einnig við skipulagningu á efni og efnisröðun útfararinnar ásamt samningu og flutnings hugvekju og minningarorða.

Til að fá athafnarstjóra frá Siðmennt til að stýra útför þarf að fylla út og senda rafræna beiðni á vef Siðmenntar. Mikilvægt er að beiðnin berist með eins góðum fyrirvara og hægt er miðað við fyrirhugaðan dag útfarar. Það er mikilvægt að slá ekki daginn fastan hjá útfararþjónustu eða húsi fyrr en öruggt er að athafnarstjóri sé fáanlegur þann tiltekna dag. Oftast gengur það vel. Ef lítill fyrirvari er fyrir hendi skal hringja í framkvæmdastjóra Siðmenntar, Eyjólf Örn, í síma 612-3295.

Mikilvægt er að hafa í huga að Siðmennt rekur ekki útfararþjónustu og því þurfa aðstandendur einnig að vera í samskiptum við útfararstofu. Útfararstofur sjá um nauðsynlega þjónustu er lúta að flutningi, umgjörð og skipulagningu útfara. Þær eru nokkrar á höfuðborgarsvæðinu en einnig eru staðbundnar útfararþjónustur á vegum kirkjugarða víðs vegar um landið. Þær sjá um öll framkvæmdaatriði, þar á meðal: Sækja hinn látna, færa hann í líkhús, kistuleggja og grafa. Einnig panta þær, ef óskað er, tíma fyrir útförina, auglýsa hana í fjölmiðlum, útvega líkkistu og duftker, sjá um prentun dagskrár fyrir athöfn, panta blómaskreytingar, og útvega tónlistarfólk.

Kistulagning

Kistulagning (sérstök kveðjustund nánustu ættingja og vina) getur farið fram með ýmsum hætti. Þegar óskað er eftir aðkomu athafnastjóra Siðmenntar að kistulagningu þarf að gæta þess að búið sé að ræða tímasetninguna við Siðmennt. Þetta á sérstaklega við ef halda skal hana hana hálfum degi á undan útför eða á öðrum degi en minningarathöfnin. Í sumum tilvikum hefur annar athafnarstjóri þá verið með kistulagninguna þó reynt sé að hafa það hinn sama og stýrir minningarathöfninni. Síðustu ár hefur það færst í aukana að halda kistulagningu sama dag og útförina sjálfa.

Minningarathöfn

Minningarathafnirnar eru mislangar, frá 20 mínútum upp í klukkustund. Fjöldi tónlistaratriða og viðbótar-minningarorða ræður þar mestu um. Hugvekja athafnarstjórans er órjúfanlegur þáttur af hlutverki hans í athöfninni og gefur henni dýpt, sem og siðrænan og ígrundaðan blæ. Hugvekjur hafa oftast ákveðin sem ákveðin eru í samráði við aðstandendur.

Minningarorðin eru persónuleg og reynt að slá á létta strengi og gefa persónu hins látna góð skil eftir því sem óskir um það liggja fyrir.

Venjulega er tónlist flutt og er ekkert fast form á því hvernig að henni er staðið eða hvaða lög verða fyrir valinu. Það fer allt eftir óskum hins látna, ef þær liggja fyrir, og/eða aðstandenda.

Greftrun

Greftrun kistu fer oftast fram sama dag og minningarathöfnin/útförin. Greftrun duftkers fer fram síðar. Ef óskað er eftir aðkomu athafnastjóra Siðmenntar að greftrun duftkers þarf að gæta þess að ræða tímasetningu við Siðmennt með góðum fyrirvara ef óskað er eftir sama athafnastjóra og sinnti miningarathöfninni/útförinni.

Við greftrun fer athafnarstjóri Siðmenntar fer með líkfylgdinni að grafreitnum og fer með nokkur falleg orð fyrir jarðsetninguna (eða kveðju með kistuna ofanjarðar) eftir óskum hins látna (ef þær liggja fyrir) eða aðstandenda.

Greftrun fer fram í kirkjugörðum óháð trú-og lífsskoðunarfélagsskráningu hins látna. Kirkjugörðum ber ekki skylda að sjá fyrir óvígðum reitum, en það veltur á kirkjugarðsnefnd hvers garðs hvort að gert sé ráð fyrir slíkum reitum. Í kirkjugarðinum í Grafarvogi eru óvígðir reitir til. Misjafnt er hvort að trúlausu fólki og húmanistum finnst það skipta máli að vera í óvígðum reit eða ekki.

Lagaatriði

Útför hefur ekki lagalega merkingu í sjálfu sér og þarfnast því ekki sérstaks lögaðila til umsjónar á henni. Jafnan er farið eftir óskum hins látna eða nánustu aðstandendum hans.

Skilyrði fyrir framkvæmd

Eftirfarandi þarf að ganga frá og uppfylla áður en útför má fara fram:

Dánarvottorð þess læknis sem úrskurðaði um andlátið þarf að liggja fyrir og því þarf að skila til embættis sýslumanns.

Leyfisbréf sýslumanns er gefið út í kjölfarið (oftast samdægurs) og það á að afhenda þeim sem hefur umsjón með útförinni þ.e. athafnarstjóra Siðmenntar í okkar tilviki (eða sýna útfararstjóra það ef að fjölskyldan sér sjálf um útförina).

Útförina verður að halda innan tiltekins tíma. Sjá nánar í lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr 36, 4. maí 1993.

  • Kistulagning

    Kistulagning (sérstök kveðjustund nánustu ættingja og vina) getur farið fram með ýmsum hætti. Þegar óskað er eftir aðkomu athafnastjóra Siðmenntar að kistulagningu þarf að gæta þess að búið sé að ræða tímasetninguna við Siðmennt. Þetta á sérstaklega við ef halda skal hana hana hálfum degi á undan útför eða á öðrum degi en minningarathöfnin. Í sumum tilvikum hefur annar athafnarstjóri þá verið með kistulagninguna þó reynt sé að hafa það hinn sama og stýrir minningarathöfninni. Síðustu ár hefur það færst í aukana að halda kistulagningu sama dag og útförina sjálfa.

  • Minningarathöfn

    Minningarathafnirnar eru mislangar, frá 20 mínútum upp í klukkustund. Fjöldi tónlistaratriða og viðbótar-minningarorða ræður þar mestu um. Hugvekja athafnarstjórans er órjúfanlegur þáttur af hlutverki hans í athöfninni og gefur henni dýpt, sem og siðrænan og ígrundaðan blæ. Hugvekjur hafa oftast ákveðin sem ákveðin eru í samráði við aðstandendur.

    Minningarorðin eru persónuleg og reynt að slá á létta strengi og gefa persónu hins látna góð skil eftir því sem óskir um það liggja fyrir.

    Venjulega er tónlist flutt og er ekkert fast form á því hvernig að henni er staðið eða hvaða lög verða fyrir valinu. Það fer allt eftir óskum hins látna, ef þær liggja fyrir, og/eða aðstandenda.

  • Greftrun

    Greftrun kistu fer oftast fram sama dag og minningarathöfnin/útförin. Greftrun duftkers fer fram síðar. Ef óskað er eftir aðkomu athafnastjóra Siðmenntar að greftrun duftkers þarf að gæta þess að ræða tímasetningu við Siðmennt með góðum fyrirvara ef óskað er eftir sama athafnastjóra og sinnti miningarathöfninni/útförinni.

    Við greftrun fer athafnarstjóri Siðmenntar fer með líkfylgdinni að grafreitnum og fer með nokkur falleg orð fyrir jarðsetninguna (eða kveðju með kistuna ofanjarðar) eftir óskum hins látna (ef þær liggja fyrir) eða aðstandenda.

    Greftrun fer fram í kirkjugörðum óháð trú-og lífsskoðunarfélagsskráningu hins látna. Kirkjugörðum ber ekki skylda að sjá fyrir óvígðum reitum, en það veltur á kirkjugarðsnefnd hvers garðs hvort að gert sé ráð fyrir slíkum reitum. Í kirkjugarðinum í Grafarvogi eru óvígðir reitir til. Misjafnt er hvort að trúlausu fólki og húmanistum finnst það skipta máli að vera í óvígðum reit eða ekki.

  • Lagaatriði

    Útför hefur ekki lagalega merkingu í sjálfu sér og þarfnast því ekki sérstaks lögaðila til umsjónar á henni. Jafnan er farið eftir óskum hins látna eða nánustu aðstandendum hans.

  • Skilyrði fyrir framkvæmd

    Eftirfarandi þarf að ganga frá og uppfylla áður en útför má fara fram:

    Dánarvottorð þess læknis sem úrskurðaði um andlátið þarf að liggja fyrir og því þarf að skila til embættis sýslumanns.

    Leyfisbréf sýslumanns er gefið út í kjölfarið (oftast samdægurs) og það á að afhenda þeim sem hefur umsjón með útförinni þ.e. athafnarstjóra Siðmenntar í okkar tilviki (eða sýna útfararstjóra það ef að fjölskyldan sér sjálf um útförina).

    Útförina verður að halda innan tiltekins tíma. Sjá nánar í lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr 36, 4. maí 1993.

Kostnaður

Siðmennt setur upp ákveðið gjald fyrir hverja athöfn og í því felst kaup athafnarstjórans og umsýsla. Ferðakostnaður og gisting/dagpeningar ef með þarf greiðast sérstaklega. Akstursgjaldið er nú 184 krónur á hvern ekinn kílómetra. Vinsamlegast hafið sérstaklega samband við skrifstofu Siðmenntar ef þetta gæti átt við.

Gjaldskrá þessi er í samræmi við þann tíma og vinnu sem fer í undirbúning og framkvæmd útfara. Jafnframt eru athafnastjórar ekki þá þegar á launum við þessi störf (ólíkt t.d. prestum Þjóðkirkjunnar).

Þjónusta Siðmenntar
80.000 kr.
Afsláttur fyrir félaga í Siðmennt
40.000 kr. afsláttur ef aðstandandi hins látna er félagi. Ef hinn látni var félagi er athöfnin niðurgreidd að fullu.

Innifalið í kostnaði er viðtal við aðstandendur, ráðgjöf um athöfnina, samráð við athafnaþjónustu, ræðuskrif og annar undirbúningur. Athafnastjórar Siðmenntar leggja metnað sinn í að veita aðstandendum faglega en jafnframt persónulega þjónustu. 

Skráning í siðmennt

Fyrir félaga í Siðmennt

Útfararathafnir félaga, eða barna þeirra (0-17 ára) eru niðurgreiddar að fullu.

Félagi þarf að hafa skráð sig hjá Þjóðskrá í félagið eða staðið skil á félagsgjaldi sínu (ef skráður í félagið utan Þjóðskrár) til að afsláttur gildi. Aðstandendur geta kannað hjá skrifstofu Siðmenntar hvort hinn látni hafi verið félagi.

Aðrar athafnir

Kistulagning, sjálfstæð athöfn sem ekki er felld inn í útfararathöfn heldur fer fram á öðrum degi eða öðrum tíma samdægurs.
Ekki er greitt sérstaklega fyrir kistulagningu ef útför og kistulagning eru haldnar í sömu athöfn.

Þjónusta Siðmenntar
17.500 kr.
Afsláttur fyrir félaga í Siðmennt
17.500 kr. ef meðlimur

Jarðsetning duftkers eða kistu, sem ekki er í beinu framhaldi af útför.
Ekki er greitt sérstaklega fyrir jarðsetningu ef útför og jarðsetning eru haldnar í sömu athöfn.