Civil confirmation began in Iceland in 1989 when 16 teenagers participated in the first program. For the first time in the 23 year history of civil confirmation in Iceland, the number of youths enrolled in the program has exceeded 200. This amounts to an 85% increase in participation in the program over the past 5 years The program consists of a 12 week course in ethics, critical thinking and related subjects followed by a festive graduation ceremony in which many of the teenagers perform and prominent members of Icelandic society make speeches. Over the years, as our publicity campaigns expanded and media coverage increased, this alternative to religious confirmation has grown increasingly popular. In the early years participation was confined to the capital area but after we started offering a concentrated two-weekend version of our educational program for youth living outside of the capital area, the program went nationwide. We now hold courses and the graduation ceremony in various areas of the nation. What started out as a single class and single ceremony in Reykjavik has now grown into 7 classes and 7 ceremonies held in various parts of the country.
Archive for nóvember, 2011
On Thursday November 3, 2011 Siðmennt conferred its annual awards at a reception held at Icelandair Hotel Reykjavik Natura. The recipient of this year’s Humanist award was Páll Óskar Hjálmtýsson, a living icon and one of Iceland’s most popular and beloved singers. Páll Óskar has for many years promoted human rights for GLBT individuals and paved the way for others by being a superb role model with his positive, creative, and sincere manner.
For the fourth time, Siðmennt also presented its Education and Science Award for important contributions to educating the public in Iceland. The recipient of the Education and Science Award for 2011 was the Amateur Astronomical Society and its related Astronomy Website for their major contributions to educating the Icelandic public about science. They bought and distributed 300 telescopes to 220 primary and secondary schools in Iceland along with a documentary film called “Eyes on the Skies”. Furthermore they visited 150 of those schools and taught the teachers how to use these instruments. Two years ago they held a 5 week long outdoor exhibition for the public with 26 giant photos of the universe.
The awards reception included a musical performance by a Siðmennt member Mamiko Dís Ragnarsdóttir and for the first time a cabinet minister, Ögmundur Jónasson (Minister of Justice and Human Rights) made a speech on this occasion. He praised the work of Siðmennt and mentioned a bill in Parliament put forth by his ministry which would give Siðmennt equal legal status with religious organizations.
Fjölgunin er 85% á 5 árum og athöfnum fjölgað úr einni í sex

Jóhann Björnsson afhendir fermingarvottorð
Í fyrsta skipti í starfi Siðmenntar hefur fjöldi ungmenna sem skráð hafa sig í borgaralega fermingu farið yfir 200. Mikil aukning hefur verið á þátttöku ungmenna í fermingafræðslu Siðmenntar undanfarin ár. Árin 2003-2005 voru þátttakendur um 90, árin 2006-2009 um 115 og árið 2010 voru það 162 ungmenni sem völdu þennan kost. Það var stórt stökk og sem endurtók sig síðasta vor þegar 195 ungmenni fermdust á vegum félagsins. Fyrir borgaralega fermingu 2012 hafa nú yfir 200 ungmenni skráð sig. Aukningin á fimm árum er því 85% en þess ber að geta að skráningu lýkur ekki fyrr en 30. nóvember svo búast má við að fleiri bætist í hópinn. Þetta samsvarar því að 5% af ungmennum á fermingaraldri velji fermingarfræðslu og athöfn Siðmenntar.
Samtímis þessum mikla áhuga hefur athöfnunum fjölgað en þær fara fram á fleiri stöðum á landinu. Það er ekki lengra síðan en árið 2005 að aðeins ein athöfn fór fram í Háskólabíói með 93 þátttakendum. Árið 2012 verða í boði sex athafnir á fjórum stöðum. Tvær í Reykjavík, ein á Akureyri en þar verða um 25 ungmenni fermd (sem er 100% aukning frá í fyrra), ein á Selfossi þar sem 6 fermast og síðan tvær athafnir í Salnum í Kópavogi (ríflega 30 í hvorri fyrir sig).
Forráðamenn Siðmenntar eru einstaklega ánægðir með þennan árangur og segir Hope Knútsson, formaður Siðmenntar og skipuleggjandi borgaralegrar ferminga: „Þessi fjölgun er mjög ánægjuleg og er mikill stuðningur við það gæðastarf sem unnið er af kennurum Siðmenntar undir dyggri stjórn Jóhanns Björnssonar, heimspekings og kennara. Sú nálgun að ræða við ungt fólk um siðfræði, heimspeki, gagnrýna hugsun, fordóma, sorgarviðbrögð, samskipti kynjanna svo eitthvað sé nefnt hefur sýnt sig falla þeim vel í geð og búa þau undir aukna ábyrgð í lífinu.“

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
Ræða innanríkisráðherra við afhendingu viðurkenninga Siðmenntar 3. nóvember 2011
Guðsótti og góðir siðir, segja menn. Óttinn við Guð er upphaf viskunnar. Það kenndi Gamla Testamentið.
En hvað gerist ef óttinn er tekinn út úr jöfnunni? Ef Guð bregður sér frá? Verður þá allt stjórnlaust einsog í barnaskólabekk, þegar kennarinn fer fram? Eða getur verið að réttlætiskennd, heiðarleiki, samúð og kærleikur séu manninum eiginleg? Höfum við samvisku? Hvaðan kemur hún?
Hvert sem svarið er, þá er ljóst að hvorki Guð né ótti er forsenda góðra siða.
Samviskan er okkur ásköpuð og eiginleg og gott uppeldi ræktar hana og þroskar. Og best þroskumst við í óttaleysi. Og kærleika.
Fjöldi fólks velur að lifa án trúarbragða en fæstir myndu kjósa líf án kærleika. Kærleikur er upphaf viskunnar, ekki ótti. Ótti leiðir til vanlíðunar og vondra verka. Nýja Testamentið tekst á við ótta með allt öðrum hætti en Gamla Testamentið og önnur trúarbrögð hafa óþrjótandi svör til þeirra sem spyrja.
Fimmtudaginn 3. nóvember var hin árlega Húmanistaviðurkenning Siðmenntar afhent, sjöunda árið í röð, og fór viðburðurinn fram á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Handhafi viðurkenningarinnar árið 2011 er Páll Óskar Hjálmtýsson sem hefur árum saman barist fyrir mannréttindum samkynhneigðra og með jákvæðni sinni, sköpunarkrafti og einlægri framkomu verið landsmönnum öllum kærkomin fyrirmynd.
Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar var úthlutað í fjórða sinn. Árið 2008 hlaut Pétur Tyrfingsson sálfræðingur hana, árið 2009 hlaut Orri Harðarson hana og árið 2010 Ari Trausti Guðmundsson. Eitt af megin umfjöllunarefnum félagsins er þekkingarfræðin og stuðningur við vísindalega þekkingarleit og fræðslu. Félagið veitir viðurkenningu þeim aðila eða samtökum sem hafa fært þjóðinni mikilvægt framlag í þessum efnum. Að þessu sinni eru það Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn sem hljóta viðurkenninguna.
Ögmundur Jónasson, Mannréttindaráðherra, flutti ávarp við upphaf viðburðar.
Ljósmyndir frá viðurkenningarafhendingunni er að finna neðst í þessari færslu.
Kynningarfundur fyrir ungmenni og aðstandendur þeirra sem hafa áhuga á borgaralegri fermingu verður haldinn
Laugardaginn 12. nóvember 2011 kl. 11:00 – 12:30, í sal 1 í Háskólabíói
Á kynningarfundinum verður næsta fermingarnámskeið Siðmenntar kynnt. Ennfremur verður greint frá fyrirkomulagi væntanlegrar athafnar næsta vor og sýnt verður kynningarmyndband frá athöfnunum sem haldnar voru vorið 2011.