Archive for apríl, 2011

Pall Óskar_featured

Hér er  upptaka af ávarpi Páls Óskars Hjálmtýssonar til fermingarbarna sem tóku þátt í borgaralegri fermingu Siðmenntar þann 10. apríl 2011. (Lesa má ræðuna í heild sinni hér)

 

Siðmennt lógó_featured

Borgaraleg ferming í Hofi á Akureyri 19.mars 2011

Hugleiðing um áhyggjur, ótta og hugrekki

Góðan og gleðilegan dag kæru fermingarbörn, foreldrar, aðrir aðstandendur og vinir.

Þið fermingarbörn, sem eruð að komast í fullorðinna manna tölu, eigið enn eftir nokkur ár í skjóli foreldra og ástvina til að undirbúa ykkur fyrir sjálfstætt líf. Þetta er skemmtilegur tími – og unglingsárin eru mikilvæg – því nú reynir á ykkur sjálf meir en áður þegar þið voruð börn.

Lesa áfram ...

BF2011-29

Fjölbreyttur hópur einstaklinga hefur flutt hátíðarræðu á borgaralegum fermingarathöfnum í gegnum tíðina. Á þessari síðu má sjá lista yfir ræðumenn og tengla í þær ræður sem Siðmennt hefur fengið rafrænt afrit af.

p.s. Ef þú veist um eintak af ræðu sem á heima á þessari síðu máttu láta stjórn Siðmenntar vita.

Páll Óskar

BORGARALEG FERMING 2011. Háskólabíó.  Sunnudaginn 10. apríl 2011

(Sjá myndband)

Ég vil byrja á því að þakka Siðmennt fyrir að leyfa mér að halda þessa ræðu – og óska ykkur öllum fermingarbörnunum hjartanlega til hamingju með að borgaralegu ferminguna.   Það er alveg aðdáunarvert að það sé svo mikið af unglingum sem spyrja sig sjálf krefjandi spurninga og gleypi ekki við öllu umhugsunarlaust, og gangi í gegnum sína fermingu á siðferðislegum og heimspekilegum grunni.   Þið eruð algert æði.

Einu sinni var ég staddur á listahátíð í Berlín.  Þar sá ég eitt alflottasta og áhrifaríkasta listaverk sem ég hef séð á æfinni.   Listaverkið var eins og öryggishlið á flugvelli.  Á öllum flugvöllum þá er alltaf leitað á manni – verið að athuga hvort maður sé með byssur eða hnífa á sér.  Þetta listaverk var nákvæmlega svona.  Þetta var leitartæki sem pípaði á mann, og maður þurfti að labba í gegnum þetta á listasýningunni.  Það var eitt hlið fyrir karla og eitt fyrir konur.  Nema hvað, það var búið að steypa og móta hliðin, þannig að útlínurnar á því væru nákvæmlega eins í laginu eins og tvær heimsfrægar fullkomnar manneskjur, Jennifer Aniston, og Arnold Schwarzenegger.

Lesa áfram ...

BF2011-28

Í dag 10. apríl fóru fram í Háskólabíói tvær borgaralegar fermingarathafnir á vegum Siðmenntar. Ungmennin sem voru útskrifuð úr fermingarundirbúningi Siðmenntar og fengu afhent skírteini því til staðfestingar voru 176 og hafa aldrei verið fleiri. Páll Óskar Hjálmtýsson hélt einlæga og hlýlega ræðu og börnin fluttu sjálf ýmis skemmtiatriði; léku á flygil, sungu, dönsuðu, fluttu ræður og ljóð, auk þess sem heilu hljómsveitirnar á vegum fermingarbarna stigu á svið.

Okkur í Siðmennt þótti takast sérlega vel til í ár og þökkum það vitaskuld fyrst og fremst öllu hugrakka og hæfileikaríka unga fólkinu sem kaus að nýta sér veraldlega athöfn á vegum siðrænna húmanista. Með því að velja borgaralega fermingu treysta þau í sessi þennan valkost sem við teljum afar brýnt að sé í boði. Þess skal getið að minni athöfn fór fram 19. mars síðastliðinn í Hofi á Akureyri þar sem 10 börn fermdust borgaralega og 6 til viðbótar munu fermast í Hallormstaðaskógi í júni.

Siðmennt óskar börnunum í borgaralega fermingarárganginum 2011 innilega til hamingju með daginn og vonar að fermingarundirbúningurinn og orðin í fermingarskírteininu verði þeim hvatning til að vera víðsýnt, heiðarlegt og hugulsamt fólk.

Við þökkum fyrir samveruna í dag.

Myndir frá seinni athöfninni fylgja hér á eftir.

Lesa áfram ...

Alþingi

Í síðustu viku var tillaga til þingsályktunar um endurskoðun á núverandi kirkjuskipan lögð fram á Alþingi af átta þingmönnum úr þrem flokkum undir forystu Árna Þórs Sigurðssonar.

“Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að skipa nefnd til að endurskoða núverandi kirkjuskipan landsins. Nefndin verði skipuð fulltrúum innanríkisráðuneytis og mennta-og menningarmálaráðuneytis auk fulltrúa þingflokka, þjóðkirkjunnar og annarra trúfélagaog lífsskoðunarfélaga. Verkefni nefndarinnar verði að meta kosti og galla mismunandi kirkjuskipanar, endurskoða núverandi samband ríkis og kirkju og meta hvort og hvaða breytingar rétt sé að gera á því. Nefndin skili ráðherra tillögum sínum fyrir árslok 2011.“

Lesa áfram ...

CFI_Center_For_Inquiry

Samtökin Center for Inquiry gáfu nýverið út þetta líflega og skemmtilega myndskeið til að minna á tilveru trúlausra í Bandaríkjunum. Myndskeiðið er aðeins 1 mínúta á lengd en kemur engu að síður mörgu til skila.

Lesa áfram ...

Siðmennt - Nýr vefur

Siðmennt hefur eignast nýja vefsíðu. Á vefnum má meðal annars finna ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræði og þjónustu félagsins. Kapp hefur verið lagt á að skýra uppsetningu og þægilegt viðmót. Lesendur eru hvattir til að senda Sigurði Hólm Gunnarssyni, vefstjóra Siðmenntar, ábendingar og tillögur um það sem má betur fara.

Lesa áfram ...

Login