Archive for maí, 2010

Laugardaginn 8. maí 2010 hélt Siðmennt málþing í tilefni 20 ára afmæli félagsins. Hér fyrir neðan má skoða upptökur af málþinginu.

Veraldlegt samfélag – gildi þess og framtíð

Efnisyfirlit:

1. Veraldlegt samfélag – er gildi þess gleymt …eða var það aldrei fyllilega lært? Svanur Sigurbjörnsson, læknir

2. Vísindaskáldsögur og veraldarhyggja. Halldór Benediktsson, líffræðinemi við HÍ

3. Aðskilnaður ríkis og kirkju. Sigurður Hólm Gunnarsson, iðjuþjálfi.

4. Hugsanir á dósum: um hjarðhugsun og andlega leti. Eyja Margrét Brynjarsdóttir, heimspekingur

5. Er allt leyfilegt sem ekki er beinlínis skaðlegt? Hugleiðingar um skólastarf á villigötum og skeytingarleysi menntayfirvalda. Jóhann Björnsson, heimspekingur og kennari.

Smelltu á hlekkinn “lesa meira” hér fyrir neðan til að fara á síðuna með myndböndunum.

Lesa áfram ...

Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu 1. maí.

Í kjölfar rannsóknarskýrslu Alþingis hefur mikið verið rætt um mikilvægi þess að efla hlut gagnrýnnar hugsunar og siðfræði í skólum landsins og samfélaginu almennt. Svo sannarlega er kominn tími til og sætir það furðu hversu yfirvöld menntamála hafa sofið á verðinum alla tíð. Ekki eru þetta þó nýjar uppgötvanir fyrir alla. Frá árinu 1989 hefur Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi lagt megináherslu á kennslu siðfræði og gagnrýnnar hugsunar á undirbúningsnámskeiðum sínum fyrir borgaralega fermingu, en alls hafa tæplega 1500 ungmenni sótt námskeið Siðmenntar. Siðmennt hefur margoft bent yfirvöldum menntamála á mikilvægi gagnrýnnar hugsunar og siðfræði í skólastarfi en því miður iðulega talað fyrir daufum eyrum ráðamanna. Einnig hefur félagið margoft komið með ábendingar um það sem betur má fara og lítur beinlínis að mannréttindum.

Lesa áfram ...

Eftirfarandi ávarp flutti Björn Jóhannsson, fyrrverandi fermingarbarn hjá Siðmennt, á málþinginu “Vörður á lífsleið barna – málþing um hlutverk ólíkra trúarbragða í uppeldi”. Var það haldið 27. apríl 2010 á vegum Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar, Menntasviðs Reykjavíkurborgar og Rannsóknastofu í fjölmenningarfræðum. Björn Jóhannsson var fulltrúi Siðmenntar.

Komið þið sæl

Ég fermdist borgaralega á vegum Siðmenntar vorið 2007. Þegar borgaraleg ferming er nefnd vakna hjá ýmsum margar spurningar. Hvað er borgaraleg ferming? Til hvers og fyrir hverja er hún? Hverjir taka þátt í borgaralegri fermingu? Hversvegna tók ég þátt og hvers virði var það fyrir mig að taka þátt í borgaralegri fermingu?

Lesa áfram ...

Eftirfarandi ræðu flutti Dagur Fróði Kristjánsson fermingarbarn í fermingarathöfn sinni í Háskólabíói 18. apríl 2010.

Í dag verð ég að manni

Uppskriftin kemur frá Þórarni Eldjárn.

Efst er höfuðið með harðfisk og tölvukubbi

svo hjartað, bara dæla rétt og slétt.

Neðst belgur á tveim fótum fullur af gubbi.

Er formúlan að manni svona létt?

Nei, gleymum því ekki að maðurinn hefur mál.

Málið birtir tilfinningar og sál.

Góðan dag ágætu gestir.

Með tíð og tíma hef ég komist að því að það borgar sig alltaf að vera jákvæður því ef maður fer jákvæður út í hlutina verða þeir miklu skemmtilegri. Ég las einu sinni setningu sem hafði mikil áhrif á mig hún hljómar þannig: þeir sem ná langt í lífinu segja að 90 prósent af öllu sem gerist, gerist innra með manni en aðeins 10 prósent fyrir utan mann. Ég tók því þannig að þá stjórnar maður í raun og veru sinni eigin hamingju.

Lesa áfram ...

Eftirfarandi grein birtist á visi.is föstudaginn 7. maí 2010.

Í tilefni 20 ára afmælisárs síns mun Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi halda yfirgripsmikið málþing um gildi veraldlegrar skipan á grunnstoðum þjóðfélagsins, laugardaginn 8. maí í Öskju, húsi HÍ frá kl 10:00 til 14:00. Fimm félagar í Siðmennt munu flytja stutt erindi og taka við spurningum úr sal. Málþingið endar á pallborðsumræðum.

Lesa áfram ...

Sjá textaútgáfu af tilkynningu:

Lesa áfram ...

Eftirfarandi ræða var flutt í Háskólabíói í athöfnum borgarlegrar fermingar 18. apríl 2010 af Evu Þórdísi Ebenezersdóttur, þjóðfræðinema við Háskóla Íslands.

Kæru fermingarbörn gleðilega hátíð og til hamingju með daginn.

Fermingin er meðal annars sögð marka þau tímamót þegar við verðum fullorðin því við ferminguna séum við tekin í fullorðinna manna tölu. Eitt af því sem flestir kljást við á þessum tímamótum, og í raun í gegnum lífið allt, er að reyna að átta sig á hver maður er. Þessi spurning “hver er ég?” leitaði svolítið á mig þegar ég var beðin um að tala hér í dag, því fæstir sem hér eru vita hver ég, Eva Þórdís, er. Ég lagðist því í svolitla sjálfsskoðun og mig langar að segja ykkur hver ég er og vona um leið að sú frásögn geti orðið ykkur til góðs í leitinni að ykkur sjálfum.

Þegar ég fæddist kom í ljós að vinstri fóturinn minn var ekki eins og fætur eru flestir, hann var stuttur og snúinn. Í kjölfarið af fæðingunni mættu foreldrar mínir oft einkennilegum viðbrögðum fólks sem vissi ekki alveg hvort það átti að óska þeim til hamingju með barnið eða færa þeim samúðarkveðjur vegna fötlunarinnar. Þau brugðu því oft á það ráð að benda fólki á þau ættu eitt barn fyrir og að vísitölu fjölskyldan var hjón með 1,97 barn, þau hefðu því bara viljað vera nákvæm! :) Viðbrögðin voru yfirleitt andköf og vandræðagangur í nokkrar sekúndur þar til fólk áttaði sig á því að þetta var grín. Þegar gríninu var náð gat fólk hlegið svolítið og áttað sig á því að auðvitað voru hamingjuóskir réttu viðbrögðin við fæðingu barnsins.

Lesa áfram ...

Login