Archive for nóvember, 2009

Umsjón borgaralegrar fermingar vill benda foreldrum á að frestur til að skrá ungmenni í borgaralega fermingu er til þriðjudagsins 1. desember næstkomandi.

Í ár hefur þátttakan tekið mikið stökk og eru nú skráð tæplega 160 ungmenni í borgaralega fermingu 2010, sem er um 30% aukning og sér ekki fyrir endann á því enn.  Þetta er sérlega ánægjulegt því að Siðmennt á 20 ára afmæli á næsta ári.

Af skráningu ungmenna á Akureyri og Norðurlandi er það að frétta að fjöldinn þar er kominn vel á annan tug og því útlit fyrir að athöfnin þar verði svipað stór og fyrsta athöfnin í Reykjavík árið 1989.   Siðmennt ætlar að kappkosta að halda árlega námskeið og athöfn á Akureyri og er það mikilvægt skref til að þjóna betur landsbyggðinni og færa þennan mikilvæga valkost nær heimahögum hvers barns á Íslandi.

Borgaraleg ferming 2008

IMG_1525-ct-adj-dker

On October 29th, 2009 Siðmennt – the Icelandic Ethical Humanist Association held its annual Humanist awards ceremony in Hotel Loftleiðir in Reykjavik.

Siðmennt’s fifth annual Humanist Award was given to the Intercultural Center (Alþjóðahús) which was established in 2001. The main role of this center is to help immigrants adjust to Icelandic society on the one hand, and to help native Icelanders adjust to a changed society. The Intercultural Center is an information center for foreigners and about immigrant issues. People coming to the center are given general and legal advice free of charge. The center offers a wide variety of educational programs and social events. Siðmennt honors the unique and unselfish efforts of the staff and board of the Intercultural Center in the service of humanitarianism, Humanism, and multiculturalism because it is important that foreigners feel well here and are enabled to adjust successfully to Icelandic society. Margrét Steinarsdóttir, the director of the Intercultural Center accepted the award.

IMG_1536-ct-adj-600Siðmennt also presented its Education and Science Award for important contributions to educating the public in Iceland. This was the second time this award was given, after being introduced last year. The recipient of the Education and Science Award for 2009 was Orri Harðarson a musician and author, for his contribution to critical discussion and information about alcoholism treatment in Iceland. Orri wrote a book called “The Alcoholic Community” (Alkasamfélagið) which was published a year ago but did not get the public discussion it deserved due largely to the collapse of the Icelandic financial system which occurred at the same time. In his book Orri traces the history of Alcoholics Anonymous and claims that the treatment of alcoholism offered by the Icelandic health care system is not professional enough and that pressure of a religious nature is exerted on all patients including those who are not interested in mixing religion with treatment. Such treatment does not appeal to many people and the success rates which are so often touted by AA are greatly exaggerated. Orri points out that there are other more professional approaches, especially when it comes to follow-up. The members of the Siðmennt board consider Orri’s book an important contribution and initiative in the critical examination of Icelandic alcoholism programs. We think Orri has shown great boldness and willingness to improve the present setup.

After the awards were presented, a duo of musician/singers Mamiko Dís Ragnarsdóttir and Hilmar Garðarsson who call themselves “Folklore”, sang two beautiful songs which were very well received.

Árið 1988 datt mér í hug að efna til borgaralegrar fermingar á Íslandi. Ég þekkti til slíkra ferminga í öðrum löndum sem voru óháðar trú og börnin mín sem voru að nálgast fermingaraldur höfðu áhuga á slíku vegna þess að við erum ekki kristin. Ég skrifaði grein í dagblöðin og sagði að börnin mín myndu verða fyrstu Íslendingarnir til að fermast borgaralega og spurði hvort að fleiri vildu vera með. Síminn byrjaði að hringja og hefur ekki stoppað síðan. Það sem ég ætlaði að gera einu sinni hefur orðið að ævistarfi. Fimmtán aðrar fjölskyldur höfðu samband við mig fyrsta árið og við bjuggum til nefnd sem setti saman fermingarnámskeið. Við tókum til fyrirmyndar skipulag Norðmanna sem hafa staðið að borgaralegum fermingum síðan 1951. Við höfum verið að þróa námskeiðið síðan.

Borgaraleg ferming er valkostur fyrir þá sem t.d. eru ekki reiðubúnir að strengja trúarheit eða fyrir þá sem af öðrum ástæðum vilja ekki taka þátt í hefðbundinni kirkjulegri fermingu. Tilgangur Borgaralegrar fermingar er að efla heilbrigð og farsæl viðhorf ungmenna til lífsins. Þátttakendur rækta meðal annars með sér jákvæðni og ábyrgðarkennd gagnvart sjálfum sér og samborgurum sínum.

Fjallað er meðal annars um siðfræði, gagnrýna hugsun, að taka erfiðar ákvarðanir, mannleg samskipti, mismunandi lífsskoðanir og lífsstíl, tilfinningar, skaðsemi vímuefna, sjálfsmyndina og samskipti kynjanna, hamingjuna, tilgang lífsins, fordóma og fjölmenningu, að vera unglingur í auglýsinga- og neyslusamfélagi, umhverfismál, lífsferlið, sorg og áföll. Þátttakendur fá mörg tækifæri til þess að mynda sér skoðanir á hinum ýmsu málum og taka þátt í rökræðum. Að námskeiðinu loknu fer fram falleg og virðuleg athöfn og taka þau fermingarbörn sem vilja virkan þátt í henni með ýmsum hætti s.s. tónlistarflutningi, dansi, ljóðalestri og ávörpum. Einnig koma gestir sem flytja ávörp. Í lok athafnar fá þátttakendur viðurkenningarskjal til staðfestingar þess að hafa tekið þátt í námskeiðinu.

Í haust fórum við af stað í tuttugasta og annað skiptið. Frá upphafi hafa rúmlega 1200 íslensk börn verið fermd borgaralega og um 16.000 gestir hafa verið viðstaddir útskriftarathafnirnar. Við höfum verið með börn alls staðar að af landinu og haldið sérstakt helgarnámskeið fyrir landsbyggðarfólk. Nú þegar hafa 138 fjölskyldur skráð börnin sín í BF í haust og er það met þátttaka. Undanfarin fjögur ár hafa ríflega 100 unglingar verið í hverjum árgangi og höfum við haft 2 athafnir á hverju vori.

Siðmennt verður í vetur með 6 námskeiðshópa, fimm í Reykjavík og einn á Akureyri fyrir ungmenni sem búa á Norður- og Austurlandi. Einnig erum við yfirleitt með nokkur fermingarbörn í fjarnámi sem búa erlendis. Nýjung er að fermingarathafnir verða einnig haldnar á Akureyri og Fljótsdalshéraði.

Allskonar unglingar velja að fermast borgaralega. Sumir tilheyra trúfélögum, aðrir ekki, sumir eiga við fötlun að stríða og aðrir ekki, sumir eru af erlendum uppruna og sumir hafa ekki náð fullkomnum tökum á íslensku, sumir eru bráðgerir og eiga mjög auðvelt með nám og sumir eiga erfitt með nám. Tekið er á móti hverjum og einum eins og hann er og er fjölbreytt mannlíf álitinn mikill kostur. Trúarbrögð, kyn, uppruni, aldur, fötlun o.s.frv. skiptir engu máli. Við eigum það öll sameiginlegt að vera manneskjur hvernig sem við erum og borgaraleg ferming er fyrir alla.

Sumir hafa spurt okkur af hverju orðið ferming er notað. Íslenska orðið „ferming” er dregið af latneska orðinu „confirmare” sem þýðir meðal annars „að styðja” eða „að styrkjast”. Ungmenni sem fermast borgaralega eru að styrkja þá ákvörðun sína að vera ábyrgir borgarar í lýðræðislegu samfélagi.

Árið 1990 var lífsskoðunarfélagið Siðmennt stofnað í kringum borgaralega fermingu, en frá maí 2008 hefur félagið boðið upp á alhliða athafnarstjórnun við allar tímamótaathafnir fjölskyldna (nafngjöf, giftingu og útför) á veraldlegan eða húmaniskan máta, stýrt af faglærðum athafnarstjórum félagsins.

Hope Knútsson, formaður Siðmenntar

Login