Archive for október, 2009

Húmanistaviðurkenning & Fræðslu- og vísindaviðurkenning Siðmenntar 2009 

IMG_1514-ctsqr-400pxSiðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur frá árinu 2005 veitt  árlega Húmanistaviðurkenningu félagsins.  Í dag 29. október fór fram afhending viðurkenninganna í Blómasal Hótel Loftleiða.

Það var Alþjóðahús sem hlaut Húmanistaviðurkenningu Siðmenntar 2009.  Alþjóðahús ehf. var stofnað árið 2001 og tók við af Miðstöð Nýbúa.  Meginhlutverk þess snýr að því auðvelda aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi annars vegar og hins vegar að auðvelda þeim sem fyrir eru að aðlagast breyttri samfélagsmynd.  Alþjóðahúsið er upplýsingamiðstöð fyrir innflytjendur og um málefni innflytjenda.  Þeim sem þangað leita er bæði veitt almenn ráðgjöf og lögfræðiráðgjöf að kostnaðarlausu. Þar  er einnig boðið upp á fræðslu, fjölbreytt námskeið af ýmsu tagi auk kennslu í samfélagsfærni. 

Lesa áfram ...

BÆNAHALD, sálmasöngur, dreifing trúarrita, samþætting skólakóra við kirkjustarf, heimsóknir presta, samskráning í skólagæslu og trúarlegt starf, kirkjuferðir, setning skóla í kirkjum og skólum lokað til að sinna fermingarstarfi.

Ef einhver heldur að verið sé að lýsa skólastarfi og trúboði undir íslömsku trúræði þá er það rangt. Þetta eru atriði úr kvörtunum foreldra við fulltrúa Siðmenntar yfir skólastarfi á Íslandi á 21. öldinni. Á hverju hausti hafa foreldrar samband við Siðmennt og kvarta undan því að skólar sem reknir eru fyrir almannafé virði ekki lífsskoðanir þeirra. Þegar aðventa gengur síðan í garð hefst næsta holskefla hringinga óánægðra foreldra. Mörgum skólastjórnendum virðist um megn að virða þau mannréttindi foreldra að ala börn sín upp í þeirri lífsskoðun sem þeir kjósa sjálfir. Þetta á sér stað þrátt fyrir að dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg árið 2007, í máli nokkurra norskra foreldra gegn norskum menntayfirvöldum, kveði skýrt á um að brotið var gegn eftirfarandi ákvæði úr Mannréttindasáttmála Evrópu með ofangreindu háttalagi:

Engum manni skal synjað um rétt til menntunar. Hið opinbera skal í öllum ráðstöfunum sínum, er miða að menntun og fræðslu, virða rétt foreldra til þess að tryggja það að slík menntun og fræðsla sé í samræmi við trúar- og lífsskoðanir þeirra.
(Samningsviðauki 1,  gr. 2 - Réttur til menntunar)

Hvað gengur skólastjórnendum til?

Lesa áfram ...

Kæru ungmenni og foreldrar!

Ferming

Kynningarfundur um Borgaralega fermingu Siðmenntar verður í Háskólabíói, Sal 1, laugardaginn 14. nóvember frá kl. 11-12.

Mikilvægt að allir þeir sem eru að hugsa um að taka þátt skili inn útfylltu skráningarblaði sem finna má hér.  Skráningin er ekki bindandi, en hjálpar okkur að gera okkur grein fyrir því hversu margir verða mögulega með.  Nú stefnir í algjört metár í þátttöku sem er ákaflega gleðilegt og við hvetjum alla til að skrá sig fyrir fundinn.   Litið er á skráninguna sem endanlega eftir fundinn.  Kennslan hefst svo í janúar 2010.

Á fundinum verður farið í gegnum ýmsar hagnýtar upplýsingar um borgaralega fermingu og Siðmennt. Safnað verður saman upplýsingum og óskum frá þátttakendum um atriði er varða kennsluna.  Það er því mikilvægt að allir reyni að mæta.

Umsjónarmenn borgaralegrar fermingar hlakka til að sjá ykkur öll!

IMG_1403-adj-ct-400pxÍ gær þann 1. október 2009, hélt Siðmennt hugvekjustund fyrir þá alþingismenn sem ekki kjósa að vera við messu fyrir setningu Alþingis. Þetta er í annað sinn sem Siðmennt býður upp á þennan valkost og var athöfnin haldin í sal á Hótel Borg líkt og síðast.

Steinar Harðarson, athafnarstjóri hjá Siðmennt, flutti hugvekju sem hann nefndi: Eru stjórnmálamenn gagnrýnir? og fjallaði hún um mikilvægi gagnrýninnar hugsunnar fyrir þjóðina.

Fjórir þingmenn sóttu hugvekjuna, en það voru þau Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir og Birgitta Jónsdóttir frá Hreyfingunni og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingflokksformaður Vinstri Grænna. Lilja Mósesdóttir (Vg) sem kom síðast, var erlendis. Eftir hugvekjuna tóku þau Guðfríður Lilja, Þór og Birgitta sérstaklega fram hversu ánægð þau væru með framtakið og innihald hugvekjunnar.

Stjórn Siðmenntar er ákaflega ánægð með þennan viðburð og allar líkur eru á því að félagið haldi áfram að bjóða uppá veraldlegar og siðrænar hugvekjur fyrir alþingismenn, við þessi tækifæri, en ýmislegt bendir til þess að það muni fjölga í þeim hópi þingmanna sem muni þiggja þessa þjónustu.

Hugvekja Steinars Harðarsonar:

Lesa áfram ...

Login