Archive for maí, 2009

Jóhann hugvekur þingmennOn Wednesday May 13, 2009 at a monthly board meeting a brilliant idea occurred to the board members of Sidmennt, the Icelandic Ethical Humanist Association. We implemented it in less than 36 hours and have been getting praise from around the world!

The new session of the Althing, the Icelandic Parliament, is always opened with the Members of Parliament going into the main cathedral in Reykjavik which is next door to the Parliament building and sitting through a mass conducted by the Bishop and other ministers of the Icelandic Lutheran state church. Afterwards they all parade out of church and into the House of Parliament. After the Icelandic government collapsed recently and elections were held, the new government was established on Sunday May 10th and Parliament was convened on Friday May 15th.  Sidmennt decided to offer a secular alternative to the traditional mass and we invited every Member of Parliament to attend a thought provoking short talk right across the street given by one of our celebrants who is a philosopher, on the subject of the importance of ethics in politics.

Lesa áfram ...

Jóhann hugvekur þingmennÍ dag föstudaginn 15. maí, braut Siðmennt og fjórir þingmenn blað í sögu þjóðarinnar.  Hefðin er sú að fyrir setningu Alþingis tvisvar á ári fara þingmenn til messu í Dómkirkjunni, en nú bauð Siðmennt þingmönnum að hlýða á siðræna hugvekju óháða trúarbrögðum þannig að þeir hefðu val við kristilegu hefðina.  Alls komu fjórir þingmenn, þar af þrír þingmenn Borgarahreyfingarinnar, þau Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir og ein þingkona frá Vinstri hreyfingunni, grænu framboði, Lilja Mósesdóttir.  Að auki kom varaþingmaður Borgarahreyfingarinnar, Katrín Snæhólm Baldursdóttir. Jóhann Björnsson athafnarstjóri og kennslustjóri borgaralegrar fermingar hélt um 10 mínútna hugvekju sem bar yfirskriftina um mikilvægi góðs siðferðis í þágu þjóðar og kom þar víða niður á þær siðferðislegu aðstæður sem þingmaður þarf að takast á við.  Hugvekjan féll í góðan jarðveg og var Jóhanni vel fagnað að henni lokinni.  Þingmennirnir og aðrir gestir fengu létta köku með rjóma og eftir stutt spjall og yfirlýsingar um ánægju með framtak Siðmenntar fóru þeir inní Alþingishúsið til að taka sinn stað í áframhaldandi inngöngu hinna þingmanna sem fóru í messu. 

(Hugvekju Jóhanns má lesa í fréttinni hér fyrir neðan.)

Sjá umfjöllun og myndband Mbl.is hér

Hugvekja flutt fyrir alþingsmenn fyrir þingsetningu 15. maí 2009 eftir Jóhann Björnsson

Í spjalli sem Þorsteinn Gylfason fyrrverandi prófessor í heimspeki tók saman í minningu fyrrverandi kennara síns og flutti árið 1977, hélt hann því fram að samfélag stjórnmálamanna sé siðlaust samfélag eða eins og hann orðar það sjálfur: “Samfélag eintómra nytjastefnumanna, eintómra stjórnmálamanna, er siðlaust samfélag.  Eina vonin um siðferði samfélagsins er sú að meðal þegna þess séu margir menn sem ekki eru stjórnmálamenn.”[1]

Ekki er það ætlun mín hér að bera alfarið á móti þessum orðum Þorsteins enda fela þau vissulega í sér heilmikinn sannleika.  En ekki vil ég heldur halda því fram að eina von siðferðisins í samfélaginu sé sú að margir menn séu ekki stjórnmálamenn.  Hinsvegar er freistandi að draga þá ályktun af  orðum Þorsteins að tími sé kominn til að siðferðilega heilir einstaklingar taki við völdum. Það skiptir meginmáli fyrir þjóðina sem kýs sér fulltrúa að þessir fulltrúar vilji vera siðferðilega heilir einstaklingar. Það er ykkar verkefni á komandi tímum að sýna fólkinu í landinu að orð Þorsteins hér á undan séu röng.

Lesa áfram ...

ÞingsetningLöng hefð er fyrir því að setning Alþingis hefjist með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Í ár verður breyting þar á þar sem alþingismönnum sem ekki kjósa að ganga til kirkju munu hafa annan valkost. Siðmennt félag siðrænna húmanista á Íslandi býður alþingismönnum að koma á Hótel Borg áður en þing er sett föstudaginn 15. maí kl. 13:30 og hlýða á Jóhann Björnsson heimspeking flytja hugvekju um mikilvægi góðs siðferðis í þágu þjóðar. Allir alþingismenn eru hjartanlega velkomnir til að eiga stutta samverustund óháð öllum trúarsetningum áður en þeir ganga til þingstarfa.

Nánari upplýsingar:
Jóhann Björnsson
s: 844-9211

Sigurður Hólm Gunnarsson
s: 898-7585

Login