9. desember 2008 - Stjórn Siðmenntar
Þann 1. desember sl. sendi Jafnréttisstofa frá sér eftirfarandi yfirlýsingu til stjórnvalda í kjölfar erindis Reynis Harðarsonar, félaga í Siðmennt, til hennar um þá lagagrein laga um skráð trúfélög frá 1999, sem kveður á um að ungabörn skulu sjálfkrafa vera skráð í trúfélag móður frá fæðingu:
„Jafnréttisstofa telur annmarka á þessu ákvæði laganna um skráð trúfélög. Í fyrsta lagi er það tæpast í samræmi við jafnréttislögin og bann þeirra við mismunun á grundvelli kyns að kyn þ.e. móðerni ráði því alfarið í hvaða trúfélag barn er skráð frá fæðingu. “