Archive for nóvember, 2007

Stjórnarmaður í Siðmennt sendir fjölmiðlum erindi vegna umræðunnar um trúarlegt starf í skólum:

Kæru fjölmiðlamenn. Vinsamlegast komið þessu á framfæri:

Nánast alltaf þegar umræðan um trúfrelsi fer af stað birtast yfirlýsingar um Siðmennt – félag siðrænna húmanista á Íslandi – sem eiga ekki við rök að styðjast. Því miður eru þessi ósannindi stundum endurtekin af fjölmiðlamönnum gagnrýnislaust. Að gefnu tilefni vill ég sem stjórnarmaður í Siðmennt koma eftirfarandi á framfæri:

Sjá: Siðmennt er EKKI á móti litlu jólum eða kristinfræðslu

Sjá einnig:
Satt og logið um stefnu Siðmenntar
Ráðherra og ritstjórn skálda stefnu Siðmenntar
(www.skodun.is)

Undanfarna daga hefur farið fram mikil umræða í fjölmiðlum vegna nýs lagafrumvarps Menntamálaráðherra um breytingar á lögum um grunnskóla. Í kjölfar ítrekaðra beiðna Siðmenntar ásamt fleiri félagasamtaka hérlendis og dóms sem féll í Mannréttindadómstóli Evrópu í Strasbourg í sumar tók menntamálaráðuneytið sig til og kom með þessa verulega góðu breytingartillögu.

Lesa áfram ...

Hópur kristinna trúfélaga, þar á meðal þjóðkirkjan, sendi alþingismönnum og sveitastjórnarmönnum bréf 10. nóvember sl. þar sem farið er fram á að kristinfræðikennsla verði efld í grunnskólum og að kristið siðferði fái aukið vægi í menntun og uppeldi komandi kynslóða. Það sætir nokkurri furðu þar sem kristinfræðin er nú kennd börnum allt frá fyrsta bekk grunnskólans. Stefna Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi, hefur verið að hvetja til kennslu í trúarbragðafræði, heimspeki, siðfræði og gagnrýnni hugsun og vill ítreka þá stefnu í ljósi kröfu trúfélaganna. Krafa þeirra er einnig hæpin í ljósi þess að skilgreininguna á “kristnu siðferði” vantar. Sumir forvígismanna þessa gjörnings hafa ítrekað fordæmt samkynhneigð og bænaganga hópsins var kölluð “pray-pride” sem mótvægi við “gay-pride”. Er fordæming Biblíunnar og þessara forvígismanna á samkynhneigð einn hornsteina þessa “kristna siðferðis”, svo dæmi sé tekið?

Krafa kristinna trúfélaga um aukna kristinfræðikennslu staðfestir að þeim þykir hún vænleg til að efla kristna trú. Hún styður því það sem Siðmennt og aðrir hafa löngum bent á, að námsefni kristinfræðinnar er fjarri því hlutlaust. Það hampar kristinni trú án þess að tillit sé tekið til annarra og slíkt samræmist ekki almennu siðferði.

Kynningarfundur fyrir unglinga sem áhuga hafa á borgaralegri fermingu 2008 og aðstandendur þeirra
verður haldinn laugardaginn 17. nóvember 2007 kl. 11:00 – 12:00 í Háskólabíói sal 2

Lesa áfram ...

Vegna umræðu undanfarna daga vill Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, árétta skoðun sína á hjónabandinu og giftingum.

Lesa áfram ...

Siðmennt – félag siðrænna húmanista á Íslandi veitti þann 1. nóvember Tatjönu Latinovic húmanistaviðurkenningu ársins 2007 fyrir óeigingjarnt starf í þágu mannréttinda á Íslandi.
Í áratug hefur Tatjana unnið að mestu í sjálfboðastarfi við málefni sem snerta mannréttindi, kvenréttindi og innflytjendamál og tekið virkan þátt í uppbyggingu fjölmenningarlegs samfélags á Íslandi.
Ræða Hope Knútsson formanns Siðmenntar:

Lesa áfram ...

On November 1, 2007 Siðmennt presented its Humanist of the Year Award for the third time. The recipient this time was Tatjana Latinovic and Siðmennt recognized her outstanding and unselfish contributions to Icelandic society over the past decade. Tatjana who is from the former Yugoslavia, has worked primarily as a volunteer in a wide variety of human rights, women’s rights, and immigrants’ rights activities. Among other things, Tatjana was a founder and president of a women’s immigrant advocacy organization, a member of the board of the Intercultural Center, a member of the government’s Immigrant Council, and a member of the board of the Women’s Shelter.

Hope Knútsson, president of Siðmennt presented Tatjana with an award plaque and 2 books: “Women Without Superstition” by Annie Laurie Gaylor, a collection of the writings of 51 strong, freethinking women of the 19th and 20th centuries, and Carl Sagan’s “Billions and Billions” about the wonders of the universe, and the meaning of life and death from the viewpoint of a scientist, Freethinker, and Humanist. The award ceremony took place in Kaffi Reykjavík and Hörður Torfason, a prominent Icelandic social activist and musician performed several of his own songs about human rights.

Login