Siðmennt var úthlutað 500 þúsund króna styrk úr Styrktarsjóði Baugs Group. Styrkurinn var afhentur formlega þriðjudaginn, 21.ágúst við hátíðlega athöfn. Þetta er í fyrsta sinn sem Siðmennt fær styrk frá einkaaðila.


Siðmennt mun nýta styrkinn til að efla starfsemi félagsins, þar á meðal til að kynna nýja þjónustu félagssins sem verður sett á fót í vetur. Hér er um að ræða veraldlegar (borgaralegar) útfarir þar sem Siðmennt mun bjóða upp á þjálfaða athafnarstjóra handa húmanistum, trúlausum og efahyggjufólki. Þá er næsta fermingarár hið 20. í sögu félagsins og verður haldið sérstaklega upp á það. Áfram mun Siðmennt berjast fyrir fullu lífsskoðunarfrelsi á Íslandi og að félagið fái sömu réttindi hérlendis og trúfélög njóta. Stjórn félagsins er hjartanlega þakklátt Baugi Group fyrir þessa stóru gjöf til félagsins.

Alls var 45 aðilum úthlutað 38,4milljónum króna úr Styrktarsjóði Baugs Group.

Hope tekur við styrknum úr hendi Ingibjargar Pálmadóttur og Jóhannesi Jónssyni

Fríður hópur ánægðra styrkþega styrktarsjóðs Baugs Group

Hope Knútsson formaður Siðmenntar með ávísunina góðu frá Baugi Group

Flokkur: Fréttir - Efnisorð:

Login