Fréttatilkynning
Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 þriðjudaginn 6. mars, þar sem fjallað er um álit menntamálaráðherra á Vinaleið Þjóðkirkjunnar, kemur fram að ráðherra telur ekki að um trúboð sé að ræða. Að auki telur ráðherra að starfsemin stangist ekki á við starf faghópa heldur sé viðbót við þjónustu skólans við nemendur. Þessi afstaða ráðherrans kemur á óvart enda hefur ráðherra ekki enn svarað erindi Siðmenntar frá 3. október 2006, þar sem hann er inntur eftir afstöðu sinni til Vinaleiðar.
Archive for mars, 2007
Stórn Heimilis og skóla hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem samtökin svara skólanefndum Álftaness, Garðabæjar og Mosfellsbæjar um þjónustuna Vinaleið.
Í fréttatilkynningunni segir m.a.
“Með tilliti til jafnræðissjónarmiða og með vísan í 2. grein grunnskólalaga, telur stjórn Heimilis og skóla eðlilegra að til framtíðar standi sálgæsluþjónusta Þjóðkirkjunnar börnum og forsvarsmönnum þeirra til boða utan húsakynna skóla, eftir að skóladegi lýkur.”
Eftirfarandi er ræða sem Bjarni Jónsson stjórnarmaður í Siðmennt flutti á málþingi Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, um vinaleið sem haldið var í Tónlistarskóla Garðabæjar 1. mars. Ræðumenn voru þrír, Bjarni fyrir hönd Siðmenntar, og Jóna Hrönn Bolladóttir og Hans Guðberg Alfreðsson fyrir hönd kirkjunnar. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar sá um fundarstjórn.