Archive for febrúar, 2007

27. febrúar 2007

Þema ársins 2006 var meiri sýnileiki. Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, og Samfélag trúlausra, sem er hópur innan Siðmenntar, urðu miklu sýnilegri en nokkru sinni áður í sautján ára sögu félaganna. Við urðum heimsþekkt vegna alþjóðlegrar ráðstefnu “Jákvæðar raddir trúleysis” sem við stóðum fyrir síðastliðið sumar í samstarfi við Atheist Alliance International, Skeptikus og Vantrú. Við urðum einnig sýnilegri hér heima vegna málþings sem við héldum síðastliðið vor um “Trúfrelsi og lífsskoðunarfélög” í samstarfi við Mannréttindaskrifstofu Íslands. Að auki vorum við mjög áberandi vegna langra og opinberra mótmæla okkar gegn svokallaðri Vinaleiðsþjónustu Þjóðkirkjunnar í skólakerfinu, í haust og vetur. Við erum betur þekkt en áður og almenningur er að byrja að tengja saman nafnið Siðmennt við mannréttindamál. Við stefnum að því að styrkja þessi tengsl í huga fólks, meðal annars með hinni árlegu Húmanistaverðlaunveitingu og nýlegri inngöngu okkar í Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Siðmennt hefur verið frá upphafi manngildisfélag sem hefur staðið vörð um mannréttindi á Íslandi, sérstaklega varðandi trú-og skoðunarfrelsi, en einnig um réttindi samkynhneigðra, innflytjenda, og frelsi vísindamanna t.d. til að rannsaka stofnfrumur í þágu læknisfræðarinnar svo nokkur dæmi séu nefnd. Við stefnum að því að upplýsa almenning enn betri um hlutverk, stefnumál og verkefni siðrænna Húmanista á Íslandi.

Lesa áfram ...

Fréttablaðið veitti í dag samfélagsverðlaun sín annað árið í röð. Siðmennt var tilnefnt til verðlauna vegna „framlags til æskulýðsmála 2007“.

Í viðurkenningaskjali sem félagið fékk vegna tilnefningarinnar segir meðal annars:

„Félagið hefur byggt upp borgaralegar fermingar á Íslandi. Fermingarundirbúningurinn hefur vakið sérstaka athygli, ekki síst vegna þeirra siðfræðikennslu sem ungmennin njóta.“

Iceland’s largest newspaper, Fréttablaðið nominated Siðmennt for one of its Community Service Awards, which they presented for the second year in a row at a large award presentation ceremony. The awards are given in several different categories. Siðmennt received a framed certificate of recognition which stated, among other things: “The organization has created and developed a civil confirmation program in Iceland which has attracted special attention for its ethical education classes for teenagers.”

Login