Archive for október, 2006

Halldór Reynisson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu, svaraði þann 21. október síðastliðinn grein minni (Mbl. 15. okt s.l.) og gagnrýni fleiri, m.a. foreldris barns í Hofsstaðaskóla sem sendi bréf til allra íbúa Garðabæjar, á þjónustu Þjóðkirkjunnar í nokkrum grunnskólum sem kallast Vinaleiðin. Halldór vildi ekki skilgreina þjónustuna sem trúboð og sagði m.a. að “Við prestar og djáknar teljum þá sálgæslu sem við veitum vera til þess að hlusta og styðja á forsendum skjólstæðingsins sjálfs.” og “Víst eru þeir [prestar / djáknar] fulltrúar kristninnar, en þeim ber að virða trúararf skjólstæðinga sinna og veita stuðning á forsendum þeirra.” Hér vil ég minna á að djáknum í þessum skólum er heimilt að fá börnin ein í viðtöl án sérstaks leyfis foreldra. Hvernig á barn að geta útskýrt trúarlegar forsendur sínar? Hér að neðan er vitnað í lýsingu á því umhverfi þar sem þessi viðtöl fara fram í Varmárskóla og Lágafellsskóla:
“Faðir vor er í ramma á vegg og sjö boðorð voru í einlægni skrifuð á blátt blað. Auglýsingamiðar um fundartíma alls barnastarfs kirkjunnar í Lágafellssókn og Jesúmyndir eru í körfu þar sem allir hafa góðan aðgang að og geta fengið miða og mynd.”

Lesa áfram ...

Opið bréf til færeyskra stjórnvalda

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, vill með þessu bréfi hvetja færeysk stjórnvöld til að taka verulega á mannréttindamálum samkynhneigðra. Siðmennt hefur fylgst með málum Rasmus Rasmussen sem hafa verið mikið í umræðunni síðustu daga og hefur félagið áhyggjur af öryggi hans og velferð.

Lesa áfram ...

Undanfarin ár hefur borið æ meira á því að prestar og jafnvel djáknar séu með viðveru og kynningar í grunnskólum landsins við öll möguleg tækifæri og hafa m.a. sett á fót kristilega ráðgjafaþjónustu innan veggja þriggja skóla.

Í Hofsstaðaskóla í Garðabæ, er þjónusta sem kallast Vinaleið. Á forsíðu vefseturs skólans má finna upplýsingar um þjónustuna, sem byggir á “kristilegri sálargæslu og forvarnarstarfi” sem Þórdís Ásgeirsdóttir djákni var frumkvöðull að og er orðin sjö ára gömul. Verkefnið var upphaflega þróað í samvinnu við kirkju og skóla í Mosfellsbæ en þar er Þórdís með viðtöl og samskiptanámskeið fyrir börn. Vinaleið er einnig til boða í Flataskóla, Garðabæ í umsjón “skóladjákna”. Í lýsingu á Vinaleið í Hofsstaðaskóla segir:

Lesa áfram ...

Ávarp Ragnars Aðalsteinssonar flutt við afhendingu Húmanistaviðurkenningar Siðmenntar 5. október 2006

Heiðraða samkoma

Ég þakka þann heiður sem mér er sýndur með þessari viðurkenningu Siðmenntar, sem ég veiti viðtöku af auðmýkt.

Siðmennt er meðal margra frjálsra félagasamtaka hér á landi, sem hafa mikilvægu hlutverki að gegna í samfélaginu. Þessi frjálsu félagasamtök, sem eru óháð ríkisvaldinu og sækjast ekki eftir að fara með ríkisvald, standa varðstöðu um lýðræðið í landinu og aukinn þroska þess.

Lesa áfram ...

Ræða eftir Hope Knútsson, formann Siðmenntar. Flutt við afhendingu Húmanistaviðurkenningar 5. október 2006

Það er með mikilli ánægju að Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, veitir í dag, annað árið í röð, húmanistaviðurkenningu Siðmenntar fyrir framúrskarandi starf í þágu mannréttinda á Íslandi.

Ég vil byrja á því að segja nokkur orð um hvað Siðmennt er og fyrir hvað félagið stendur. Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi var formlega stofnað árið 1990. Félagið er málsvari mannúðarstefnu (húmanisma) og frjálsrar hugsunar, óháð trúarsetningum, og stendur fyrir borgaralegum athöfnum. Frá 1988 hefur Siðmennt haldið undirbúningsnámskeið og séð um borgaralegar fermingar árlega. Þá hefur félagið gengist fyrir umræðufundum um ýmis mál er tengjast mannúðarstefnu, þ.e. siðrænum húmanisma, og má þar nefna málefni eins og stefnu félagsins, trúarbragðafræðslu í skólum, mannréttindi samkynhneigðra, um að taka dauðann í sátt, sorg og sorgarviðbrögð, um erlend félög siðrænna húmanista o.fl. Helsta barráttumál félagsins í dag er ósk félagsins um jafna stöðu allra trúarbragða og lífsskoðunarfélaga sem m.a. hefur í för með sér aðskilnað ríkis og kirkju á Íslandi og að Siðmennt öðlist sömu stöðu og önnur lífsskoðunarfélög.

Lesa áfram ...

Siðmennt – félag siðrænna húmanista á Íslandi hefur ákveðið að veita Ragnari Aðalsteinssyni, hæstaréttarlögmanni, húmanistaviðurkenningu ársins 2006 til heiðurs ötulli baráttu hans fyrir auknum mannréttindum á Íslandi.

Í tæplega hálfa öld hefur Ragnar tekið að sér fjölda mála sem snerta ekki einungis einstaklinga heldur þjóðina í heild. Ragnar hefur á starfsferli sínum vakið athygli á mikilvægum málum svo sem: réttindum flóttamanna, friðhelgi einkalífsins, réttinum til að mótmæla, lýðræði, málefni öryrkja, samkynhneigðra og fanga. Auk þess að hafa sinnt fjölmörgum trúnaðarstörfum síðan 1973 má geta þess að Ragnar var í stjórn Mannréttindaskrifstofu Íslands í mörg ár og formaður hennar frá 1994-1995 og 1998-2001. Ef það væri ekki fyrir baráttu Ragnars væri staða mannaréttindamála á Íslandi önnur og verri en hún er í dag.

Lesa áfram ...

On October 5, 2006 Siðmennt presented its Humanist of the Year Award for the second time. The 2006 recipient was Ragnar Aðalsteinsson, a prominent Icelandic Human Rights lawyer for his life-long, passionate commitment to protecting and increasing human rights in Iceland. For more than half a century Ragnar has accepted many controversial cases which have not only involved the human rights of individuals but also society as a whole. If not for the work of this one man the human rights situation in Iceland would be in a completely different and worse state than it is today. Hope Knútsson, president of Siðmennt recounted a short listing of the many projects which Ragnar has championed down through the years and presented him with 2 books with collected writings of Thomas Paine, and a framed award certificate.

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur á undanförnum árum bent á óviðeigandi starfsemi trúfélaga, einkum Þjóðkirkjunnar, í opinberum skólum.

Siðmennt vill með þessu bréfi vekja athygli á svokallaðir Vinaleið sem er kristileg sálgæsla og fer fram í opinberum skólum.

Tillögur Siðmenntar
1. Starf Vinaleiðarinnar verði stöðvað umsvifalaust í öllum skólum á landinu þannig að tryggt sé að trúfrelsi og hlutleysi verði virt í opinberum skólum.

2. Menntayfirvöldum sveitarfélaganna ásamt skólastjórnendum verði gert að skilja að skóla og kirkju. Öll verkefni í leikskólum og grunnskólum sem eru á vegum trúfélaga verði umsvifalaust lögð af.

3. Útbúnar verði skýrar verklagsreglur til handa skólastjórnendum og kennurum svo tryggt verði að trúarlegt starf verði ekki stundað í opinberum skólum.

ATH: Meðfylgjandi er bréf (Vinaleið.pdf) sent á menntamálaráðherra þar sem trúboð í formi Vinaleiðar er harðlega gagnrýnt. Engum sem les þetta bréf getur dulist að Vinaleiðin er trúboð sem hlýtur að teljast afar óviðeigandi í opinberum skólum og ber að stöðva strax.

Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Hólm Gunnarsson
Varaformaður Siðmenntar
S: 898-7585

Login