Reykjavík 11. október 2004

LEIKSKÓLAR REYKJAVÍKUR – Leikskólaráð
Þorlákur Björnsson, formaður

EFNI: Afskipti trúfélaga af starfi leikskóla

Siðmennt, félag um borgarlegar athafnir, hefur af því áhyggjur hve greiðan aðgang trúfélög hafa á starfssemi leikskóla í Reykjavík. Það er ósk Siðmenntar að fá fund með ráðinu til þess að skýra mál sitt betur. Til þess að svo geti orðið verður reifað í þessu bréfi helstu atriði sem við teljum að þurfi að ræða.

Ítök trúhreyfinga í leikskólum
Ísland er orðið fjölmenningarlegt samfélag þar sem fjöldi fólks af mismunandi uppruna, skoðunum, litarhætti og trú býr. Börn þessa fólks hafa því önnur gildi en fyrir eru. Einnig er það staðreynda að æ fleiri íslensk börn koma af heimilum þar sem engin trú er iðkuð.

Það hefur tíðkast víða í mörg ár að prestar stundi trúboð í leikskólum sem reknir eru af Reykjavíkurborg. Stjórn Siðmenntar veit um dæmi þar sem prestar heimsækja leikskóla vikulega til þess að “messa” yfir 2-6 ára gömlum börnum. Leikskólar, sumir hverjir, eru orðnir hluti af trúboðsstarfi ákveðinna kirkjudeilda. Við höfum sem foreldra, en einnig af frásögnum fólks sem hefur haft samband við okkur, orðið vitni að slíku trúboði. Ótrúlegt kirkjufár á sér einnig stað um jól þar sem sumir leikskólar fara með öll börnin í kirkju af “gömlum“ sið.

Siðmennt telur það með öllu óeðlilegt að slíkt skuli heimilað. Að áliti Siðmenntar skal trúaruppeldi, hverju nafni sem það nefnist, eiga sér stað á heimilum og að frumkvæði foreldra en ekki í formi trúboðs í skólum borgarinnar. Siðmennt leggur til að Leikskólar Reykjavíkur hlutist til um og stöðvi slíkt trúboð. Þar er hvorki gætt jafnræðis né tillit tekið til barna með önnur gildi.

Er unnið í anda fjölmenningarstefnu Reykjavíkurborgar?
Í merkilegu stefnuplaggi Reykjavíkurborgar, Fjölmenningarstefna Reykjavíkurborgar, er gerð virðingaverð tilraun til þess að setja starfsreglur um hvernig beri að vinna í því þjóðfélagi sem við búum við í dag. Gífurlegar breytingar hafa átt sér stað á stuttum tíma. Fólki af erlendu bergi brotnu fer fjölgandi. Önnur menning, gildi og trúarbrögð en þau sem hafa tíðkast hér á landi er orðin hluti af nýju umhverfi sem verður að taka tillit til.

Í stefnu borgarinnar segir m.a. “allar stofnanir borgarinnar þurfa að laga sig að fjölmenningarlegu samfélagi…” einnig segir “Þeir sem fyrir eru þurfa að aðlagast íbúum af mismunandi uppruna” og að lokum segir: “Leggja þarf sérstaka áherslu á fyrirbyggjandi starf, fræðslu um fordóma og fjölmenningarlega kennslu innan uppeldisstofnana í þessu sambandi”

Siðmennt vill varpa fram þeirri spurningu hvort unnið sé eftir stefnu borgarinnar í leikskólum? Er tekið tillit til þess að fólk hafi ólíkar lífsskoðanir? Er hætta á mismunun? Er nægjanlega mikil áhersla lögð á að tryggja að tekið sé tillit til þess að það eru ekki allir eins?

Siðmennt telur að dæmin sýni að misbrestur sé á að hlutleysis sé gætt. Dæmin hér að ofan eru aðeins brot af þeim upplýsingum sem við höfum um alvarleg brot af þessu tagi. Tekið skal fram að fjölmargir foreldrar hafa haft samband við Siðmennt og kvartað undan því að trúaráróður, kirkjuheimsóknir, bænahald og annar óeðlilegur trúarlegur áróður sé stundaður í skólum barna þeirra.

Samkvæmt nýjustu upplýsingum um fjölda barna af erlendum uppruna í leikskólum borgarinnar þá tala 6,1% barna annað tungumál en íslensku. Það er tæplega 15% aukning frá fyrra ári. Getur hugsast að réttur þeirra sé fyrir borð borin?

Óskir Siðmenntar
Að óheimilt verði að stunda trúboð í leikskólum á vegum Leikskóla Reykjavíkur.

Að fulltrúum Siðmenntar gefist kostur að koma fyrir leikskólaráð til samræðu um hvernig taka eigi á þessu máli.

Virðingarfyllst,

f. h. Siðmenntar

————————————
Hope Knútsson
Æsufell 4 #2F
111 Reykjavik
s. 557-3734 og 567-7752
sidmennt@sidmennt.is
www.sidmennt.is

Afrit sent öllum aðal- og varamönnum leikskólaráðs og einnig fulltrúum foreldra, starfsmanna og framkvæmdastjóra Leikskóla Reykjavíkur.

Flokkur: Skjalasafn - Efnisorð: , ,

Login