Reykjavík 21. október 2004

JAFNRÉTTISNEFND
Hildur Jónsdóttir, jafnréttisfulltrúi
Ráðhús Reykjavíkur
Tjarnargötu 11
101 Reykjavík

Kæra Hildur,

Siðmennt – félag um borgaralegar athafnir, sendi Fræðsluráði og Leikskólaráði erindi 11. október síðastliðinn þar sem óskað var eftir fundum um afskipti trúfélaga af skólastarfi barna og unglinga. Í erindunum er vitnað til Fjölmenningarstefnu Reykjavíkurborgar þar sem segir meðal annars:

“allar stofnanir borgarinnar þurfa að laga sig að fjölmenningarlegu samfélagi…” einnig segir “Þeir sem fyrir eru þurfa að aðlagast íbúum af mismunandi uppruna” og að lokum segir: “Leggja þarf sérstaka áherslu á fyrirbyggjandi starf, fræðslu um fordóma og fjölmenningarlega kennslu innan uppeldisstofnana í þessu sambandi”.

Meðfylgjandi eru erindi Siðmenntar til ofangreindra ráða og Trúfrelsisstefna Siðmenntar. Óskar Siðmennt eftir því að rætt verði um efni þessara erinda á fundi Jafnréttisnefndar og óskar um leið eftir því að fá fund með Jafnréttisnefnd þar sem þessi mikilvægu mál verða rædd.

Virðingarfyllst,

f. h. Siðmenntar

————————————
Hope Knútsson
Æsufell 4 #2F
111 Reykjavík
s.557-3734 og 567-7752
sidmennt@sidmennt.is
www.sidmennt.is

Flokkur: Skjalasafn - Efnisorð: , ,

Login