Reykjavík 11. október 2004

FRÆÐLSURÁÐ REYKJAVÍKUR
Stefán Jón Hafsteinn

EFNI: Afskipti trúfélaga af skólastarfi barna og unglinga

Siðmennt hefur af því áhyggjur hve greiðan aðgang trúhreyfingar hafa að börnum í grunnskólum Reykjavíkur. Stjórn Siðmenntar óskar eftir að fá fund með ráðinu til þess að skýra mál sitt betur. Til þess að svo geti orðið verður reifað í þessu bréfi helstu atriði sem við teljum að þurfi að ræða.

Fermingarfræðslan og grunnskólinn
Það hefur tíðkast undanfarin ár að þjóðkirkjan reki fermingarfræðslu sína á lögbundnum skólatíma að hausti hvert ár. Farið hefur verið í 2-5 daga ferðir til þess að stunda þá fræðslu. Þá er í stundaskrá þeirra sem eru á fermingaraldri tímar fyrir presta að sinna fermingarfræðslu inn í miðri dagskrá skólans.

Siðmennt er ekki að leggjast gegn fermingarfræðslunni en gerir alvarlegar athugasemdir við að skólastarf liggi niðri og veitt sé frí fyrir þá sem í fræðsluna fara. Á það skal bent að æ fleiri unglingar velja aðra möguleika s.s. borgarlega fermingu eða fermast ekki.

Einnig telur Siðmennt að slík starfssemi stangist á við almennt skólastarf grunnskóla og telur rétt að þjóðkirkjunni verði gert skylt að skipuleggja starf sitt á þann hátt að ekki raski almennu skólastarfi.

Unglingastarf og trúhreyfingar
Siðmennt vill einnig gera athugasemd við að starfi trúhreyfinga sé blandað við almennt æskulýðs- og tómstundastarf á vegum borgarinnar. Í nýlegum bæklingi ÍTR er kirkjustarf orðið hluti af nokkrum sumarnámsskeiðum sem í boði eru.

Þá virðast trúhreyfingar (þá sérstaklega þjóðkirkjan) nánast undantekningalaust fá heimild að stunda kynningu á starfi sínu innan veggja grunnskólans.

Siðmennt telur afskipti trúfélaga af skólastarfi óeðlileg og mælist til þess að slík afskipti verði aflögð með öllu. Það er skoðun Siðmenntar að skólar sem reknir eru með almannafé eigi að vera hlutlausir og óháðir hverskonar trúfélögum.

Er unnið í anda fjölmenningarstefnu Reykjavíkurborgar?
Í merkilegu stefnuplaggi Reykjavíkurborgar, Fjölmenningarstefna Reykjavíkurborgar, er gerð virðingaverð tilraun til þess að setja starfsreglur um hvernig beri að vinna í því þjóðfélagi sem við búum við í dag. Gífurlegar breytingar hafa átt sér stað á stuttum tíma. Fólki af erlendu bergi brotnu fer fjölgandi. Önnur menning, gildi og trúarbrögð en þau sem hafa tíðkast hér á landi er orðin hluti af nýju umhverfi sem verður að taka tillit til.

Í stefnu borgarinnar segir m.a. “allar stofnanir borgarinnar þurfa að laga sig að fjölmenningarlegu samfélagi…” einnig segir “Þeir sem fyrir eru þurfa að aðlagast íbúum af mismunandi uppruna” og að lokum segir: “Leggja þarf sérstaka áherslu á fyrirbyggjandi starf, fræðslu um fordóma og fjölmenningarlega kennslu innan uppeldisstofnana í þessu sambandi”

Siðmennt vill varpa fram þeirri spurningu hvort unnið sé eftir þessari stefnu í skólum borgarinnar? Er tekið tillit til þess að fólk hafi ólíkar lífsskoðanir? Er hætta á mismunun? Er nægjanlega mikil áhersla lögð á að tryggja að tekið sé tillit til þess að það eru ekki allir eins?

Siðmennt telur að dæmin sýni að misbrestur sé á að hlutleysis sé gætt. Dæmin hér að ofan eru aðeins brot af þeim upplýsingum sem við höfum um alvarleg brot af þessu tagi. Tekið skal fram að fjölmargir foreldrar hafa haft samband við Siðmennt og kvartað undan því að trúaráróður, kirkjuheimsóknir, bænahald og annar óeðlilegur trúarlegur áróður sé stundaður í skólum barna þeirra.Trúaruppeldi á ekki að vera á verksviði skóla- eða stofnanna á vegum Reykjavíkurborgar heldur er það á ábyrgð foreldra og heimila.

Einnig skal á það bent, þó ekki fari hátt, að það eru einnig til börn sem koma frá trúlausum heimilum sem ganga í skóla borgarinnar. Þau hafa einnig rétt.

Óskir Siðmenntar
Að óheimilt verði að stunda trúboð í grunnskólum Reykjavíkur.

Að fulltrúum Siðmenntar gefist kostur að koma fyrir fræðslunefnd til samræðu um hvernig taka eigi á þessu máli.

Virðingarfyllst,

f. h. Siðmenntar

————————————
Hope Knútsson
Æsufell 4 #2F
111 Reykjavík
s.557-3734 og 567-7752
sidmennt@sidmennt.is
www.sidmennt.is

Afrit sent öllum aðal- og varamönnum ásamt áheyrnarfulltrúum í fræðsluráði

Flokkur: Skjalasafn - Efnisorð: , ,

Login