18. október 2004 - Stjórn Siðmenntar
Laugardaginn 30. október 2004 kl. 11:00 – 12:00 verður haldinn kynningarfundur um borgaralegar fermingar árið 2005. Öllum þeim sem hafa nú þegar skráð sig, eða haft samband og sýnt áhuga, verður sent fundarboð. Fundurinn verður haldinn í Kvennaskólanum, Fríkirkjuvegi 9, nýbyggingu, 1. hæð stofum 2,3 og 4.