Archive for febrúar, 2004

Ný stjórn Siðmenntar var kosin á aðalfundi félagsins í gær. Brynjólfur Þór Guðmundsson ákvað að draga sig úr stjórninni að sinni. Siðmennt þakkar Brynjólfi Þór fyrir gott samstarf. Hulda Katrín Stefánsdóttir gaf kost á sér til stjórnarsetu á fundinum og var kosin til embættis með öllum greiddum atkvæðum.

Lesa áfram ...

Aðalfundur Siðmenntar verður haldinn miðvikudaginn 25. febrúar, kl. 20:00, á veitingahúsinu Kaffi Reykjavík, Vesturgötu.

Á dagskrá eru öll venjuleg aðalfundarstörf. Brynjólfur Þór Guðmundsson lætur af störfum sem stjórnarmaður. Jóhann Björnsson hefur lýst sig tiltækan til stjórnarsetu.

Hægt verður að kaupa kaffi og aðrar léttar veitingar.

Stjórn Siðmenntar hvetur alla til að mæta!

Erindi flutt á málþingi Kristilegra skólasamtaka í húsi KFUM & K þann 21. febrúar 2004 um hvort kristin trú sé úrelt.

Fundarstjóri, kæru fundarmenn.
Ég vil byrja á því að þakka Jóni Magnúsi og KSS fyrir að bjóða mér að taka þátt í þessum fundi. Opnar og yfirvegaðar umræður um trúmál og lífsviðhorf geta ekki aðeins verið áhugaverðar heldur einnig lífsnauðsynlegar til að draga úr fordómum og koma í veg fyrir átök ólíkra hópa. Ekki það að ég telji að miklir fordómar séu við lýði hér á landi enn sem komið er þá vitum við öll hættan er fyrir hendi. Átök ólíkra trúarhópa víðs vegar um heiminn ættu að vera okkur sterk viðvörun um nauðsyn umburðarlyndis og opinnar umræðu.

Lesa áfram ...

Nú styttist óðum í að borgaralega fermingarathöfnin verður haldin í ár. Þetta árið sem fyrr fer fermingin fram í Háskólabíói þann 4. apríl klukkan 11:00. Athöfnin sjálf tekur um eina klukkustund en að henni lokinni fer fram hópmyndataka. Æfingin fer fram laugardaginn 3. apríl klukkan 10:00 í Háskólabíói.

Lesa áfram ...

Nokkrir meðlimir í Siðmennt hafa haft samband við stjórn félagsins og bent á að einstaklingar eru í sumum tilfellum ranglega skráðir í trúfélög hjá Hagstofunni. Nokkur dæmi eru til að mynda um að fólk hafi skráð sig úr Þjóðkirkjunni en verið skráð í hana aftur eftir að hafa flutt til útlanda og svo aftur heim. Einnig hefur þetta komið fyrir eftir flutninga innanlands.

Lesa áfram ...

Vefur Siðmenntar hefur verið færður á nýjan vefþjón. Vinsamlegast sýnið biðlund ef allt á síðunni virkar ekki eins og það á að gera. Síðan ætti að vera komin í samt lag eftir örfáa daga.

Login