Ágætu fermingarbörn, foreldrar og aðrir aðstandendur,
Nú hafa 87 börn skráð sig í borgaralega fermingu 2004. Hjálagt fylgir listi með nöfnum allra fermingarbarnanna. Dálkurinn við hliðina á nöfnunum segir í hvaða hópi viðkomandi er. Kennari er Jóhann Björnsson heimspekingur. hs.553-0877 netfang: johannbj@hotmail.com
Mætingaskylda er í tíma. Forföll skal boða til kennara. Fermingarbörnum og aðstandendum þeirra er velkomið að hafa samband við kennara í síma eða með tölvupósti. Kennarinn mun dreifa námsgögnum og áætlun í fyrsta tíma.
Haldinn verða 3 12-vikna námskeið í Kvennaskólanum, Fríkirkjuvegi 9, í nýbyggingu 1. hæð stofa N-6 hinu megin í sama gangi og kynningarfundurinn var haldinn:
þriðjudagar kl. 16:30 – 18:00 byrjar 6. janúar
fimmtudagar kl. 16:30 – 18:00 byrjar 8. janúar
föstudagar kl. 15:30 – 17:00 byrjar 9. janúar
Hefðbundin kennsla verður brotin upp einu sinni og verður gert eitthvað félagslegt, t.d.farið í keilu eða á skauta. Foreldrar eða forráðamenn hafa yfirleitt mætt einu sinni með börnum sínum í svokallaðan foreldratíma þar sem farið er meðal annars yfir hvað gert hefur verið og foreldrum gefin kostur á að taka þátt í einni kennslustund. Svo verður einnig nú og er foreldratími sem hér segir fyrir
þriðjudagsnámskeið haldinn 16. mars 2004.
fimmtudagsnámskeið haldinn 18. mars 2004.
föstudagsnámskeið haldinn 19. mars 2004.
Helgarnámskeið fyrir landsbyggðarfólk verður eins og hér segir:
Fyrri hluti:
laugardaginn 31. janúar og sunnudaginn 1. febrúarSeinni hluti:
laugardaginn 6. mars og sunnudaginn 7. marsí Réttarholtsskóla, við Réttarholtsveg, stofa 7. Kennslan hefst kl.10:00 alla dagana og stendur til kl. 16:00 á laugardögum og til 15:00 á sunnudögum.
Siðmennt býður þátttakendum í helgarnámskeið upp á léttan hádegisverð alla dagana þeim að kostnaðarlausu. Ef veður og færð verða ómöguleg á fyrrgreindum helgum verður helgarnámskeið haldið næstu helgi á eftir til vara.
Farið verður á skauta og í keilu og mun Jóhann hringja í fólkið í helgarnámskeiðinu áður en námskeiðið byrjar og segja nánar frá þvi. Siðmennt sér um að koma þátttakendum á staðina en hver þátttakendi greiðir fyrir sig aðgangseyri. Ekki hefur verið ákveðið hvort boðið verði upp á foreldratíma fyrir foreldra barna á helgarnámskeiði þar sem það fer eftir því hvort þeir komi með börnum sínum til Reykjavíkur. Haft verður samráð við þátttakendur síðar um þetta mál.
Fermingin fer fram í Háskólabíói sunnudaginn 4. apríl 2003 kl. 11 f.h. og tekur athöfnin u.þ.b. 1 klukkustund. Hópmyndataka mun væntanlega verða strax á eftir athöfninni. Æfing verður laugardaginn 3. apríl 2003 kl. 10:00.
Fréttir af framvindu undirbúnings má sjá á heimasíðu Siðmenntar: www.sidmennt.is
Með bestu kveðjum,
f.h. stjórnar Siðmenntar,
Hope Knútsson