Archive for apríl, 1997

SUMIR hafa, m.a. í þessu blaði, látið í ljós þá skoðun að orðið ferming eigi aðeins við um trúarathöfn og að ekki sé réttlætanlegt að tala um borgaralega fermingu. Ferming er dregið af latneska orðinu “confirmare”. Í bókinni Kirkjumál sem Kirkjuráð hefur gefið út er orðið “confirmation” mest notað í upprunalegri mynd.

Lesa áfram ...

Opið bréf til allsherjarnefndar Alþingis

SIÐMENNT er félag sem berst fyrir jafnrétti í trúmálum og þar af leiðandi afnámi lögbundinna forréttinda þjóðkirkjunnar. Sömuleiðis viljum við að ríkisvaldið á Íslandi hætti afskiptum af málefnum eins trúfélags. Því vill félagið að 62. grein stjórnarskrárinnar sé afnumin, en þar stendur m.a. “að hin evangelísk-lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja á Íslandi og skuli íslenska ríkið að því leyti styðja hana og vernda”. Ákvæði þetta hefur staðið í stjórnarskránni fá 1874 þegar trúfrelsi var fyrst innleitt í landinu. Það var skiljanlegt á sínum tíma en er í engu samhengi við nútímann.

Lesa áfram ...

Login